Skál
Ég hélt ég væri blautur, en hér eruð þið að skála á mánudagsmorgni...jæja hvað um það kannski maður detti þá bara í það líka... Skál
Ég hélt ég væri blautur, en hér eruð þið að skála á mánudagsmorgni...jæja hvað um það kannski maður detti þá bara í það líka... Skál
Morgunn og ekki morgun það er næstum komið hádegi. Tæmir úr glasinu
Góður hádegismatur:
Skyr, hrært út með kaftein morgan og smá slettu af púðursykri...ótrúlega gott...hikkk
æ, hvur skollinn. Loksins þegar það er fyllerí hér í laumupúkaþræðinum þá missi ég af því...
ohh jæja, ég get svosem fengið mér smá lögg, það er nú einu sinni komið miðvikudagskvöld.. Skrúfar tappan af Captain Morgan flöskuni sinni
breyting: æ hvað maður getur verið vitlaus þegar maður er í glasi
Bara Egils djús fyrir mig takk, ég drekk nefnilega ekki...
Hvað ætlarðu þá að gera við djúsinn?
Togar í skegg sitt og starir opinmynntur útí loftið
þvo skegg mitt, en ekki hvað?
bölvar e-bay því nýji hártoppurinn er enn ókominn
Jæja, það er nú að nálgast helgi, eigum við ekki að hita upp fyrir helgina...
opnar flösku með norskum brjóstdropum, horfir löngunaraugum á dagatalið og röflar:
fer ekki að koma mánaðarmót svo maður geti fengið sér ákavíti???
Vjer sjáum oss til gleði mikillar að laumupúkaþráðurinn lifir góðu lífi. Skál ! Ljómar upp
Við ættum ekki að þurfa að laumupúkast þetta með jafn uppbyggjandi iðju og ofdrykkja er. En ekki ætla ég að vera fyrstur til að stökkva fram og bera mig fyrir lýðnum.
Gott kvöld, ég heiti Órækja og ég er ofdrykkjurútur. Skál
Tekur dansspor með rommflöskuna
Var að vakna en er ennþá fullur, hef ekkert vín en skála við ykkur með vatni.
Skál.
Jæja, kæru laumupúkar.. Skál fyrir ykkur öllum !
Bítur tappan af Captain Morgan flöskuni sinni og hellir ofan í sig