— GESTAPÓ —
Hvað ertu að fara að gera núna - Í bundnu máli
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Andþór 12/4/08 19:54

Glaður fer á grímuball
góð við verðum saman.
Hún er mjög flott overall
en...ég asnalegur í framan.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 12/4/08 20:21

Opna bauk og annan til
opna líka bokkur.
Helli í mig um það bil
eins og þolir skrokkur.

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 12/4/08 22:36

Hér í liggur bala baun
í bæli mínu, hygg ég.
Eftir dagsins annaraun
einnig þar nú ligg ég.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 16/9/08 11:26

Þamba drullu, þamba saur.
Þamba hland úr stóru nauti.
Því ófullur þessi gaur
þykir landsins mesti fauti.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: