Já ég geri mikið af því.
Hefur þú ljómað upp nýlega
Jájá.
Hefur þú ljómað niður nýlega?
Ekki nýlega nei.
Hefur þú ljómað til hliðar nýlega?
Nei... Reynir að ímynda sér hvernig hægt er að ljóma til hliðar...
Hefur þú klappað dýri nýlega?
Já, mjög nýlega.
Hefur þú klappað fyrir einhverjum nýlega?
Nei, veistu ég held ekki.
Hefur þú öskrað á rafmagnstæki og skammað það fyrir að virka ekki?
Já, þó það sé mjög órökrétt. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hefur þú gengið í öfuga átt eftir rúllustiga?
Já. Ég var að reyna að ná í skóinn hennar ömmu minnar sem hún hafði misst í stiganum. Þetta var hennar fyrsta og síðasta skipti í rúllustiga. Glottir eins og fífl
Hefur þú hlegið að fólki sem stamar?
Nei, fann til með drengnum.
Hefur þú kynnt þér sögu Norður-Afríku?
Nei
Hefur þú skitið í heyið?
nei
Hefur þú óvart hlegið af einhverju sem þú áttir ekki að hlægja að?
Já, heldur betur.
Hefur þú misst svefn nýlega?
Já
Hefur þú snúið sólarhringnum við nýlega?
Já
Hefur þú átt erfitt með að snúa sólarhringnum til baka?
Já, einhvern tíma hefir það nú gerst.
Hefur þú drukkið áfengi í vinnunni?
Nei.
Hefur þú unnið hjá ríkinu?