Það kom heimsendir til mín í gær. Hann kom með pizzu...
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Það kom heimsendir til mín í gær. Hann kom með pizzu...
Og varstu ekki hrædd?! Nagar neglurnar
Það kom heimsendir til mín í gær. Hann kom með pizzu...
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Mér finnst nú ekkert fallega gert af vísindamönnum að eyða öllum þessum peningum og geta ekki einu sinni framkallað heimsendi. Auk þess vil ég fá 'beam me up Scotty" -græju NÚNA, ég hef ekkert að gera við svona CERN drasl sem rétt nær að gera smá púffff og búið.
Sjitt, hvaða hálfvitar eru þarna á þessu ER.is
Það er akkúrat ekkert að fara að gerast þarna. Hvað ætli bandaríkjaher og fleiri herir hafi gert í "Skjóli nætur" ?
Mig langar að hitta þetta lið á þessari gáfulegu heimasíðu, og slá hvern og einn utanundir fyrir að vera fáviti.
Svo ég vitni í eina..
"Ég er farin að gráta .. það hrædd er ég .. ekki um mig heldur litla gullmolann minn.. Ég verð ein með stráknum 10 sept.. maðurinn langt í burtu að vinna ...
Ég á eftir að gráta þangað til .... :( hver býðst til þess að koma og vera hjá mér 10 september og knúsa mig í druslur ?"
1. Vaska upp Búið
2. Semja við ljósmæður Nenniggi
3. Sækja um Evrópusambandsaðild Búið
4. Komast að því hvernig Lost endar Búið
5. Finna út hvar Linsey Lohan verður á morgun Búið
6. Þrífa baðið Nenniggi
7. Smakka krókódíl Búið
8. Byrja að reykja Nenniggi
9. Fara í sleik við ókunnugan Ojjjjj
10. Stela húfu af löggu Búið
11. Skrifa um yfirvofandi heimsendi í blöðin Ojjjjj
12. Byrja að blogga Ojjjjj
13. Pissa Er að því
Ef það kemur heimsendir þá sé ég eftir því að hafa borgað síðasta kortareikning og að hafa borgað helvítis RÚV. Kosturinn er allaveganna að þá þarf ég ekki að fara með bílinn í skoðun. Svo er bara svalast að fá heimsendi í afmælisgjöf!!
Til að hafa allan varan á þá borgaði ég enga reikninga í dag. Ákvað að fresta öllu slíku ef heimsendir kynni að skella á. Skil Nermal vel að sjá eftir síðustu krónunum sínum (bókstaflega) í RÚV, ef enginn verður morgunndagurinn.
Já en, ef peningunum er ekki eytt í að borga reikninga... í hvað er þeim þá eytt? Ekki neitt! Það er ennþá sorglegra.
Þetta var ein skemmtilegasta lesning mánaðarins.. ef ekki ársins. Skellihlær
Andskotans nördar að eyðileggja líf mitt mér gæti ekki verið meira sama um hvernig heimurinn varð til... Hver samþykkir svona verkefni ?
pfffff...best að fara að strauja vísað þá! <-- gaman að vera giftur þessari.
Ég nenni þá ekkert að vera raka mig fyrst það er að koma heimsendir... tekur því ekki.
Til hvers að strauja vísað ef hún getur ekkert notið þess?
Og til hvers að sleppa því að borga reikninga? Þú getur ekkert notað peningana hvort sem er. Ef það væri heimsendir á morgun væru peningar verðlausir. Já í raun væri bara allt verðlaust.
Ég skil ekki afhverju maður ætti ekki bara að slaka aðeins á og reyna að njóta lífsins - það sem er eftir af því - ef það kæmi heimsendir á morgun.
Ég ætti kannski að hætta að læra í bili...
Það er eins gott að það komi ekki heimsendir, ég hef loksins fundið heimasíðu sem er súrari en Albert Yggarz á LSD og fólkið þar er edrú! Vá maður minn hversu óhemju mikið ég dáist að því hve fáránlegt fólkið þarna á er.is getur verið. Ég neita að trúa að þetta fólk sé ekki allt á listamannalaunum sem fyndnustu manneskjur í heimi.
Ööööhh.. þið vitið að er.is er það sama og b********.is, er það ekki??
Tilkynning tilkynning!
Fyrst heimsendir skellur á á morgun skulum við öll hittast í kvöld hjá Rýtingu og strauja kortið almennilega! Hver veit nema við fáum afslátt á barnum fyrst aðstæðurnar eru svona. Ljómar upp
Þú segir nokkuð.
Ég var að spá í að fara á glímubragðaæfingu, en hitt er einnig freistandi leið til að verja síðasta kvöldinu á Jörðinni - ef fólk ætlar að mæta.
Hmm... það er þriðjudagur...