Hver var fyrsti bítillinn til að birtast í Simpsons þáttunum og af hvaða tilefni? (hann dúkkar upp öðru hvoru í samtölum milli fjölskyldunnar..)
Paul McCartney. Hann og Linda áttu garð uppi á kvik-e-mart held ég.
nei, Paul var sá síðasti til að koma fram í simpsons, minnir mig, fyrir utan Lennon, en það næst ekki í hann Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið (ég er búin að vera vakandi í bráðum sólahring og skopskynið er aðeins farið að dala, biðst afsökunar)
Ég er nokkuð viss um að það hafi verið Ringo (en George kom á svipuðum tíma).
ef svo væri vil ég líka vita tilefnið (því annars væru líkurnar á réttu giski 1:3, sem er aðeins of gott)
Marge málaði mynd af honum og sendi, svona líka frábæra og hann svaraði bréfinu 20 árum síðar eða svo.
Þegar Hómer reynir að ná greifingjanum út úr hundahúsinu, haldandi að dýrið sé Milhouse, fer það ansi illa með hann. Lísa spyr Hómer að einhverju og hann svarar með klassískri setningu. Hvert er samtalið?
Þarna stend ég á gati... í bili að minnsta kosti...
Ég man að Homer lyfti upp skyrtunni og sýndi Lisu stærðarinnar op á maganum eftir átökin en ég man ekki hvað þeim fór á milli. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Með tilvísun í síðustu spurningu.
Af tilviljun sá ég að þannig svaraði ég spurningu einni fyrir áramót:
Ég ætla að segja að röðin hafi verið þessi:
Fyrstur var Ringo Starr í þættinum þar sem Marge málaði mynd af honum og sendi.
Næst var það George Harrisson þegar Homer og félagar stofnuðu barbershop kvartettinn The B sharps.
Að lokum Paul McCartney sem kom fram þegar fjallað var um grænmetisætuna Lísu.
En já - menn virðast vera slakari í Simpsons frösunum en mörgu öðru.
Ha ha!
Lisa spyr hann hvernig greifinginn náði að rista upp kviðarholinu hans án þess að rífa skyrtuna
Homer svarar: I dunno. What am I, a tailor? [Ísl. Ég veit ekki. Hvað helduru að ég sé, klæðskeri?]
Eitthvert sinnið var Hómer að spjalla við móður sína og líkti henni við sjónvarpsþátt - á þann veg að hún hyrfi og kæmi stöðugt aftur
Um hvaða sjónvarpsþátt átti hann við?
Neib - þessi þáttaröð hefur verið sýnd hér á landi - stöð 2 minnir mig, veit ekki hvort hann er í sýningu eins og er