Ég rakst hér Herbjörn Hafralóns.... eða hvað? Það er ekki allt sem sýnist.
Erum við að tala um skandal hér í uppsiglingu?
Identity theft ... íslensk þýðing: Aðalsjálfsþjófnaður?
Jafnvel sjálfstol?
Sjálfstol er ekki alvitlaust. Nota það Ljómar upp
Bloggar núna bullukollur
ber mitt nafn og mynd.
Andríkur sem riðurollur
ræðinn er sem kind.
Bloggar núna bullukollur
ber mitt nafn og mynd.
Andríkur sem riðurollur
ræðinn er sem kind.
Þessa mynd getur hann hvergi hafa fengið nema héðan, þar sem allar myndir hér eru sér meðhöndlaðar af guðunum.
Nafn mitt hengi, hnekk hef fengið
og höfuð frjálst ei nota.
Ef nafn hans fengi það gæti gengið
að ganga að honum og rota.
Ég er ekki eins fúll og vísurnar gefa tilefni til, en mér þótti skrítið að hálftregur moggabloggari væri að nota nafn mitt og mynd.
Það er eitt við þetta skondna orð hjá henni Regínu "Sjálfstol", það mynnir mig óneitanlega á lystarstol.