Ég er að hugsa um að fara að líma þræði efst.
Hvað finnst mönnum um að Poppkomman verði límd?
Mér finnst að þeir þræðir sem eru með flestar síður eigi að vera neðstir og þeir sem eru með fæstar eiga að vera efstir. Reyna að jafna þetta aðeins út.
-
Mér finnst að þeir þræðir sem eru með flestar síður eigi að vera neðstir og þeir sem eru með fæstar eiga að vera efstir. Reyna að jafna þetta aðeins út.
-
Ég styð það og legg til að allir viðstaddir skáli fyrir því.
Ég reyndar vil hefja veg gáfulegra leikja til hærra plans og því líma þá... en ég vil líka láta lýðræðið ráða hér.
Lím er óþverri. Ég fer alveg úr límingunum við svona hugsunagang stákar.
Er ekki tilvalið að raða þráðum eftir innleggjafjölda?
Sú hugmynd er nokkuð í rétta átt, en ég held að best væri að notast við fall af bæði innleggjafjölda og aldri síðasta innleggs. Þannig myndu dauðir þræðir færast niður, og hinir virkari haldast ofarlega.
Æ, ég held að fyrirkomulag með sífelldum breytingum miðað við innleggjafjölda myndi skapa óþarfa rugling og hreyfingu á svæðinu. Þó núverandi fyrirkomulag sé ekki ídeal, þá fær maður fljótlega á tilfinninguna hvar þræðir eru og leitar þangað. Svo breytist það bara lítillega með stofnun nýrra þráða.
Þetta eru líka ekkert rosalega margir þræðir, ég sé persónulega enga þörf fyrir að líma þræðina hingað og þangað.
Rétt hjá Mér sjálfum. Engin þörf er á límingum ef einungis er um eina síðu af leikjum að ræða.
Held það sé óþarfi að líma nokkuð hér... það eru ekkert svo margið þræðir hérna ennþá, en það kemur að því...
Jú það er satt Skabbi... það verður ekkert límt hér fyrr en fleiri síður myndast og það verður líklegast ekkert í bráð... og loka ég því fyrir límingarumræðuna. nær í dobbelteipið
vefur Sverfil með dobbelteipinu