Setur risastórt sjónvarp á miðjan þráðinn
Já, ég var að fá þennan 380 tommu flatskjá sendan frá Japan.
Sest í leizýbojinn sinn og kveikir á Animal Planet
Kastar gróti í skjáinn og skríkir af ánægju við að sjá hann molna í smátt
Kremur Grágrím undir sjónvarpinu
ÉG REYNI HÉRNA AÐ GERA SAMFÉLAGINU GOTT OG GEF ÞVÍ ÞETTA RISASTÓRA SJÓNVARP SEM ÉG ÆTLAÐI AÐ LEYFA ÞÉR AÐ HORFA Á EINS MIKIÐ OG ÞÚ VILDIR OG SVONA LAUNAR ÞÚ MÉR!!!
ÞÚ ER VANÞAKKLÁTT LÍTIÐ SVÍN SEM Á EKKERT BETRA SKILIÐ EN AÐ ROTNA Í VÍTISLOGUM HELVÍTIS!!!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvernig getur maður "ROTNAÐ Í VÍTISLOGUM HELVÍTIS?"
Ég er viss um að maður myndi brennu upp fyrst...
Og hefur Helvíti einhverja aðra loga en vítisloga... ?
Starir þegjandi út í loftið
Kemur spenntur inn með risa popp&kók og ætlar að laumast til að horfa á Debbie does Dallas
Sér hvað kom fyrir sjónvarpið
Læðist snöktandi út
Iss þetta er allt of stórt sjónvarp, flest fólk í sjónvarpi lýtur hræðilega út á bíótjaldi og þessvegna er það í sjónvarpi... sjáið bara Loga Bergmanná stærri skjá en 190 tommum byrjar Logi Bergmann að líkjast Rancorskrímslinu hans Jabba The Hutt. Auk þes sem það fer hræðilega með fólk að horfa á svona stóran skjá... ef maður horfir á 2 tíma bíómynd er það eins og að liggjaa undir1000 sólarlömpum í tvo tíma. Don ég veit þú meintir vel en ég varð að eyða skjánum þínum því þú hefðir grillað alla Gestapóa á einum degi. Og þeir eru flestir ansi vel grillaðir nú þegar.
Burðast inn með svarthvítt Hitatchi 16 tommu ferðatæki árgerð 1956, með biluðum Volume hnapp og snúrufjarstýringu.
Þetta er alveg nóg.
Þú hefðir þá bara getað horft á helvítis tækið úr fjarlægð! Þú ert búinn að eyðileggja lífið fyrir öllum! Og Hvæsi er skælandi inni á klósetti! Ánægðiur núna ha?! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Já, og svo getur þú bara borgað restina af afborgununum sjálfur! Lætur Grágrím hafa reikningana
Sest niður fyrir framan nýja tækið og setur Chaplin á