Rétt er það. Vamban skal það vera hvernig sem með það er farið.
En hvað sálina varðar þá vil ég eitthvað í staðinn. Kannski auglýsingu fyrir Admiral á tunglið? Það væri ekki verra.
Auglýsing fyrir Admiral á tunglið skal það vera.
Auglýsingu á tunglið? Það er ekkert! Við getum höggvið Mars niður í Admiral flösku, skúlptúrað Admiral úr Esjunni, Heklu, Akrafjalli, jú neim it! Svo skal ég sjá til þess að þessum aumu bandaríkjaforsetum fjórum verði hent af Rushmore fjallinu vestra og eitthvað stórfenglegt höggvið út í staðinn, t.a.m. Vamban sjálfur, drekkandi úr forláta gulladmiralflösku, umvafinn örmum yndisfríðra meyja! Tunglið? Tunglið er bara byrjunin!
Fyrr skal ég dauður liggja en að Gretzky eignist mína sálu. Hún er mín, ekki einhvers fjárans nýliðaskratta!
Tilboð Goggsins er of gott til að hafna. Þú færð sálina aftur.
Afhendir Goggnum sálina á afar formlegan hátt í viðurvist skrifstofustjóra Landbúnaðarráðuneytisins, prests, yfirlögreglustjóra, Lalla Johns og Geirs Ólafssonar. Leðurdvergar hlaupa um og kasta makkarónum yfir mannskapinn og pönkhljómsveitin Eyðublað Nr. 566 leikur vel valin lög.
Svo skálum við vökvanum sem sálin var geymd í. Baðvatnið hans Skúla er örugglega búið að gerjast mátulega eftir öll þessi ár.
Skál!
Hvað ætlar þú svo að gera við sálina Goggur sæll?
Ljómar upp Skál!
Góð spurning, hvað er hægt að gera við svona sál? Potar í hana með priki til að gá hvort hún sé lifandi Kemur henni fyrir í kóbaltblárri flösku sem inniheldur vígt vatn, blessað af æðstapresti Hreintrúarflokksins Ég veit ekkert hvað skal gera við þetta, hef aldrei notað hana áður. Geymi hana bara í varaforsetaherrahöllinni þangað til ég ræð fram úr þessu. Ætli hún sé annars til?
Hvað um það, hér sé partí! Hrifsar næsta glas til sín og sturtar úr því niður kokið á sér
Hrifsar næstu kóbaltbláu flösku og tæmir hana
Gott að önnur hver flaska hér er kóbaltblá. Kemur flöskunni sinni vel fyrir bakvið læstar dyr
Ropar hátt og snjallt
Böstar múv
Hringir nokkur símtöl í skuggalega verktaka vegna komandi verkefna
Jæja, nýtist sálartetrið þér eitthvað Goggur?
Njaa, þetta er afskaplega ómerkileg tuðra, þessi sál mín. En ágæt uppí hillu svosem.