Aumingi, það eru einungis kvenmenn sem grenja!
Þetta er nú ekki svaravert þú litli ljóti neftóbakssjúklingur...
Skabbína þá? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Don... manni getur nú sárnað Brestur í óstöðvandi grát
Fyrirgefðu Skabbi, þetta bara vall útúr mér. Það kemur stundum fyrir...
Komdu nú, ég skal splæsa á þig ákavíti!
Strákar, hressum okkur bara við með því að stíga línudans. koma svo..
Stígur sem aldrei fyrr
Fær maður ekki lassó hérna einhverstaðar?
Tekur létta línudanssveiflu við Vina komdu heim með mér♪♪
Eru menn farnir að spjalla við sjálfan sig hér? Æfir línudansinn
Ósköp er nú upplífgandi að rita svona tveggja blaðsíðna mæringarþráð um eigin persónu, byggja þar upp væntingar og láta bíða eftir sér í rúman mánuð. Allt þetta án þess að vera kallaður hégómlegur enda væri slíkt auðvitað fáheyrð vitleysa. Það er svo gott að eiga ykkur að Glúmarnir mínir. Engin samtöl eru jafn gefandi og þau sem ég á við sjálfan mig, mér finnst ég bara ná að tala svo vel til mín. Já og svo er auðvitað hann Vladimir að væflast hérna líka en ég fer nú ekki að kvarta yfir því - mér finnst ég alltaf sjá svo mikið af sjálfum mér í honum Vladimir að ég gleymi oft að hann er ekki ég. Vonandi endar með því að hann geri slíkt hið sama (ásamt einum öðrum gestapóa) svo við getum öll lifað þess fullviss um að við séum ég og ekki einhver annar.
Rétt er það, gott er að vera Glúmur (enda fátt annað til í stöðunni)... Skál Glúmur og aðrir Glúmar... xT
Eitt er svo málið, er vér höfum íhugað, í tilvistarkreppu vorri: Getur verið að vér séum Glúmur?
Svar óskast, og það fljótt, því vér erum hvergi nærri vissir.
Starir þegjandi út í loftið
Allir gestirnir hjer eru Glúmur, þó með örfáum undantekningum er þjer telist eigi til. Þar af leiðandi eruð þjer Glúmur.
Ég er Glúmur nema á þriðjudögum.
Ég er Glúmur nema á þriðjudögum.
HaHAA! Í dag er þriðjudagur og núna er ÉG Glúmur! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Jæja, þriðjudagurinn liðinn og Glúmur er ekki lengur Glúmur, eða hvað? Klórar sér í höfðinu
Ég er Glúmur, eða var það Hvæsi.Klórar sér í höfðinu
Æj það kemur í ljós þegar þetta innlegg prentast á þráðinn.