Það tilkynnist hjer með opinberlega að til viðbótar því er hjer hefur komið fram vantar einnig aðila til að aðstoða við utanumhald öflugasta tölvukerfi Baggalútíu en þar er um að ræða vjelbúnað og hugbúnað til að halda utan um listann yfir óvini ríkisins.
Einhverntíma á næstunni verður svo skipað í þau embætti er eigi er búið að skipa í. Hönnun aðferða til að velja milli umsækjenda í tilvikum þar sem eigi er hægt að ráða alla er um sóttu er í undirbúningi.
Ég þekki persónulega afar illvígan hugbúnað, sérlega notendafjandsamlegan, sem gæti smellpassað í þetta verkefni.
Ljómar upp og telur gráu hárin sem umræddur hugbúnaður hefur valdið
Það tilkynnist hjer með opinberlega að til viðbótar því er hjer hefur komið fram vantar einnig aðila til að aðstoða við utanumhald öflugasta tölvukerfi Baggalútíu en þar er um að ræða vjelbúnað og hugbúnað til að halda utan um listann yfir óvini ríkisins.
Er annar kostur í stöðunni en sjálfur Bob?
Bob kæmi til greina ef hann sæist hjer oftar; sást hann síðast fyrir rúmu ári og óttumst vjer að honum hafi verið rænt af óvinum ríkisins.
Hinsvegar þökkum vjer góðar undirtektir; í sum embætti bárust margar umsóknir Ljómar upp og kann valið í sumum tilvikum að verða vandkvæðum bundið Starir þegjandi út í loftið.
Jafnframt tilkynnist hjer með opinberlega að lokað verður á umsóknir kl. 17:00 á fimmtudag og verður eftir það farið að vinna úr framkomnum starfsumsóknum Kemur upp móttökuaðstöðu fyrir mú..., nei, tækifærisgjafir til forsetaembættis Baggalútíu.
Kemur fyrir nokkrum sprengjum í þræðinum og notar þráðinn sem kveikiþráð
Aftengir sprengjurnar skörulega og hendir þeim í skrumgleypinn en skilur þráðinn eftir ósnertan
bíður ennþá eftir afgreiðslu umsóknarinnar um að verða forsetafrú
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég hef ákveðið að draga umsókn mína til varaliðs lífvarðarsveita forsetaembættisins til baka og einbeiti ég mér að fullu að varaforsetatilnefningunni.
Hækkar vandamálaskattinn um nokkur vel valin prósent og notar ágóðan til að láta reisa rísavaxna styttu af forsetanum
Færir forsetanum að gjöf alsjálfvirka ofurljósritunarvjel, 12 tonn af löggiltum skjalapappír, ásamt 12 lindarpennum. Einnig kóbaltblátt blek sem nægir til að undirrita sjerhvert skjal sem úr alsjálfvirku ljósritunarvjelinni kemur.
Bíður síðan stillt og prúð við hlið Dulu eftir ákvörðun forsetans.
tekur upp gemsann sinn og sendir þjónunum í bleiku höllinni sinni skilaboð um að mála hana kóbaltbláa og láta slá skilaboðin Vlad er EIGI krútt í flatirnar fyrir framan höllina, heldur áfram að sitja og bíða
Væntanlega þarf foringi lifvarðarsveitar vera maður sem hefur fengið herþjálfun?
Væntanlega þarf foringi lifvarðarsveitar vera maður sem hefur fengið herþjálfun?
Það telst óneitanlega kostur.
Kíkir við á forsetaskrifstofunni og gleymir, alveg óvart, þar einni tylft af Gagnlega gjöreyðandanum, alsjálfvirkum dómsdags vélmennum sem nauðsynlegt er fyrir hvern forseta að eiga, ef hann hefur einhvern snefil af sjálfsvirðingu.
Kíkir á þráðinn og sér að skörunin elds að köku forsetaembættisins hefur borið góðan árangur og skarar aðeins betur, skörulega auðvitað
Kemur akandi á skriðdreka að forsetahöllinni (ekki fyrrverandi bleiku höllinni hennar Dulu), stöðvar farartækið, kíkir upp um lúguna og horfir með velþóknun aftur fyrir drekann, á röð af enn stærri skriðdrekum svo langt sem augað eygir.
Sæll Valdimir. Þetta er minn skriðdreki, hinir eru fyrir þig, ef, þú veist.
Bíður eftir að klukkan verði 17:00 Var það ekki örugglega þessi fimmtudagur?

hristir hausinn Alvöru dömur aka ekki um á hertólum, þær láta einkaþjónana sína um það.Ljómar upp
tekur upp símann og pantar fyrir Vlad allsherjar dekur í einni af heilsulindum kóbaltbláu hallarinnar
Ég held að stelpurnar séu tilbúnar að hefjast handa í heita pottinumGefur frá sér vellíðunarstunu
Njóttu dagsins herra forseti.blikkar
Kemur akandi á skriðdreka að forsetahöllinni (ekki fyrrverandi bleiku höllinni hennar Dulu), stöðvar farartækið, kíkir upp um lúguna og horfir með velþóknun aftur fyrir drekann, á röð af enn stærri skriðdrekum svo langt sem augað eygir.
Sæll Valdimir. Þetta er minn skriðdreki, hinir eru fyrir þig, ef, þú veist.
Bíður eftir að klukkan verði 17:00 Var það ekki örugglega þessi fimmtudagur?
hristir hausinn Alvöru dömur aka ekki um á hertólum, þær láta einaþjónana sína um það.Ljómar upp
Ég er að sækja um embætti forsetafrúar, ekki dömu.