Smá í viðbót:
Ég er með blöðrur á fótunum
að reyna að finna vin á Oxford-stræti.
Ég keypti A-Ö ferðahandbók
til að reyna að finna klúbbana og KFUM.
Þetta er þó ekki Y.M.C.A. með The Village People?
Nei, auðvitað ekki, það eru bandarískir hommar en Oxford street er í Englandi (minnir mig allavega).
Frank Zappa?
David Bowie söng einhverntímann um Uxafurðustræti. Gæti þetta verið hann?
Þetta minnir mig svo á Rufus Wainwright..?
Var einmitt að hlusta á þetta lag í útvarpinu áðan.... datt svo inn á þennan þráð...
Strange Town með The Jam.
Jæja, kem hérna með einn í trausti þess að ég hafi rétt fyrir mér með svarið á undan.
Rólandi mér á afturveröndinni
stökkvandi af stórum drumbi
Pablo líður betur núna
hangandi á fingurgómunum
Þetta hljómar eins og eitthvað með David Bowie.. eða hvað?
Hér veit ég ekkert hvað er í gangi þannig að ég læt þetta bara duga:
HÆ!
Þetta er Bowie og mig minnir að Pablo hafi hangið á nöglunum en ekki gómunum, en hvað veit ég. Man ekki hvað lagið heitir og nenni ekki að leita að því
Bætt við skömmu síðar: Döh... hver er tregur? Lagið heitir að sjálfsögðu einfaldlega Pablo Picasso
Eiit einfallt til að vekja leikinn.
Elskan, ég hef verið hér áður
Þekki þetta herbergi, hef gengið þessi gólf
Ég bjó einn áður en ég kynntist þér
Hárrétt hjá þér, ég gleymdi þessum leik algerlega.
Eiit einfallt til að vekja leikinn.
Elskan, ég hef verið hér áður
Þekki þetta herbergi, hef gengið þessi gólf
Ég bjó einn áður en ég kynntist þér
Hallelujah eftir Cohen. Þekktast er það þó líklega í flutningi Jeff Buckley.
Jamm Jamm. Rétt er það Þarfi.
Vitaskuld.
Næsta:
Visnar hendur, visnir skrokkar, grátbiðja um lausn
- yfirgefnir af höndum guða sem þeir sköpuðu sjálfir.
Þjóðir hrópa undir molnandi himnum fyrir ofan.
Þið eruð sek - refsingin er dauði til handa öllum þeim sem lifa.
Refsingin er dauði til handa öllum þeim sem lifa.
Ekki alveg ...
Ég held að Útvarpsstjóri sé líklegur til að vera með þetta - eða þá bróðir hans.