Margar stundir Gráni gekk
götuna heim með bagga.
Eitt sinn gerði honum hrekk
helvítið hún Magga;
stakkonum í strigasekk
og stjaksetti, í bragga.
Á laugardögum ligg ég íðí
lesti stunda flesta.
Margar stundir Gráni gekk
götuna heim með bagga.
Lipurt hross sem loksins fékk
sinn lokastíg að vagga.
Yfir gröf hans græt ég oft
gengnar hestaferðir.
Úbbs! Of seinn
Á laugardögum ligg ég íðí
lesti stunda flesta.
Leigu- röðum - bíla bíð í
best að fá sér hesta.
Og fyrri fyrripartur stendur bara.
Yfir gröf hans græt ég oft
gengnar hestaferðir.
Allir fætur uppíloft
eru lítilsverðir.
---------------------------------
Drungalegt er dag & nótt
um dauða hest´ að yrkja
Drungalegt er dag & nótt
um dauða hest´ að yrkja
Fremur kýs ein-kirningssótt
- og kíwanis að styrkja.
Reika ég um nótt og nið
næstum orðinn fullur
Reika ég um nótt og nið
næstum orðinn fullur
hér um slóð er slúberts lið
sem slettir ensku við og við.
Skömjmum á menn skella vilt
en sklálar létt við suma.
Skömmin á menn skella vilt
og skálar létt við suma.
Aðrir hafa strengi stilt
stuðar vilta ruma.
-------------------------------
Æstur gerist manna múgur
mættur til að höndla,
Æstur gerist manna múgur
mættur til að höndla,
Sópast til mín seðlahrúgur
saman tek í vöndla.
Slíkum draumum getur gleymt
göltur allra tíma.
Slíkum draumum getur gleymt
göltur allra tíma.
Mig um hefur dáldið dreymt
að dólgast villt í síma.
Ljóða- þessi ljót er -gerð
lítil- ósköp -fjörleg
Ljóða-þessi ljót er-gerð
lítil-ósköp-fjörleg.
Ég í minni visku verð
væntan- lega -gáfnatreg.
----------------------------------
Heirði ljúfan lóusöng
lætur vel í eyra.
Heyrði ljúfan lóusöng
lætur vel í eyra.
Héðinsfjarðar- held ég -göng
hlakki til að keyra.
Borgin okkar ekki fríkkar,
alltaf lækkar standardinn.
Borginn okkar ekki fríkkar
altaf lækkar standardinn.
Hugsun Óla varla víkkar
Villa er skandallinn.
--------------------------------
Tæpast okkur verður vært
vöntun er á öllu.
Tæpast okkur verður vært
vöntun er á öllu.
Allt er nú sem orðið glært
andlitið á Höllu.
Jafnvel þótt ég káli kind
og komi með í hellinn.
Jafnvel þótt ég káli kind
og komi með í hellinn.
Mikinn leysir Vöttur vind
Vala heirði smellinn.
---------------------------
Sólar geyslar glytra
glugga rúðu á.
Sólar geislar glitra
gluggarúðu á.
Taugar löggu titra
trukkakalla slá.
Allt er bannað, ekkert má
engu skal hér mótmælt.
Allt er bannað ekkert má
engu skal hér mótmælt.
Löggan öskrar farið frá, ( Pipar og salt)
fryður úti mikið skælt
----------------------------
Niður barðir bílstjórar
bölva meðferðinni.
Niður barðir bílstjórar
bölva meðferðinni.
Mín vegna þeir moðhausar (takið eftir glæsilegu endaríminu)
mættu sitja inni.
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Gas! Gas! Gas! Gas! Gas! Gas!
Veltir fyrir sér hvort þarna leynist hugsanlega ofstuðlun, en hristir þá tilhugsun af sér
Sumar tel ég trauðla nú
tímamótaviðburð.
Samkvæmt íslenskri braghefði veldur klifun ekki ofstuðlun. Við getum tekið umræðu um það í skólastofunni ef einhver nennir. Hitt er annað hvort ég hafi gerst sekur um ofklifun. En botninn var fjandi góður.
Sumar tel ég trauðla nú
tímamótaviðburð.
Einu sinni átti ég kú
oft var hún um frið spurð.
Allir út að lemja löggur
látum fljúga húfurnar.