Ég man eftir því þegar búfénaður var rekinn eftir götum Reykjavíkur.
Ég man þegar mér fannst augljóst að telja: ... sautján, átján, nítján, títján.
Ég man eftir því að sjá þannig talningu fyrst í barnabók Guðna Kolbeinssonar.
Vjer munum er bara var ein leið milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarvegurinn. Og bara ein akrein í hvora átt og samt aldrei neinar hægfara bílaraðir (nema er allt fór á kaf í snjó).
Ég man þegar Reykjavík var útlönd og á góðum degi gat maður séð þau... útlöndin þ.e.a.s.
Ég man þegar að ferð til Reykjavíkur var talin til tíðinda.
Ég man eftir því þegar maður setti mjólk í ullarsokk til að halda mjólkinn frá því að frjósa á leiðinni í höfðuðborgina og maður ýmist gekk eða sat hestinn og reyndi að rata á milli varðanna.
Ég man þegar Arnarneshæðin var hæð en ekki brú. Ég man líka óljóst eftir því að einu sinni var Bústaðavegurinn ekki á brú yfir Kringlumýrarbrautina. Og ég man eftir því þegar Skógarhlíðin var stofngata og þar stoppaði Hafnarfjarðarstrætó. Sem hét Landleiðir.
Ég man þegar þegar maður fór ekki yfir brú til að fara Ártúnsbrekkuna og þegar ártúnsbrekkunni sleppti var maður kominn upp í sveit... og keyrði fram hjá einhverju afdalahverfi sem kallaðist Árbær.
Ég man eftir því þegar það flóknasta í lífi mans var að læra að reima skóna sína.
Ég man eftir því þegar það flóknasta í lífi mans var að læra að reima skóna sína.
Meinarðu að þú sért búinn að ná því? Sko strákinn!
Ég man þegar maður fékk aðeins í magann og maður var heima allan daginn.
En þú ert að græða! Þú fékkst í magann og bakið, þá verðurðu heima á morgun! Fjallhress!
Ég man eftir því þegar það flóknasta í lífi mans var að læra að reima skóna sína.
Meinarðu að þú sért búinn að ná því? Sko strákinn!
Nei. En það er bara ekki lengur það flóknasta.
Ég man þegar Gestapó var ekki uppfullt af illa lyktandi og ljótum nýliðum.
Ég man þegar Gestapó var ekki uppfullt af illa lyktandi og ljótum nýliðum.
Lafði Giselle
Nýgræðingur með ritstíflu.
Innlegg: 7
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið

Tekur bakföll og skellir sér á lær. Þar kom vel á vondan.