Ég var að borða pasta með kjötbollum og sósu.... yndislegt að vera búin að fá útborgað og eiga efn á mat!
Bölva MBL.is fyrir að leyfa mér ekki að lesa minningargreinarnar um ömmu mína nema selja mér þær fyrst... ætli .þessi svín græði mikið á dauða annarra?
Samhryggjast Grágrími og systrum hans... og minna hann á að hafa samband við hana Hjálmlaugu.
Ég var að bölva sjálfri mér fyrir að geta ekki skilað efnafræðiskýrslu af því að ég missti af andskotinn hafi það tveimur efnafræðitímum þegar ég var veik um daginn.
Bölvar Furðuveru henni til samlætis og bendir henni á að fá glósur hjá andskotanum til að klára veikindaverkefnið
Hafa samband við nokkra hrotta á íslandi til að leggja einstakling í einelti og hræða hann nóg til að líf hans verði að hreinu helvíti þar til hann hefur greitt mér það sem hann skuldar mér með vöxtum og dráttarvöxtum.
Ég var að vakna.
Ég var að geyspa. Því ég vaknaði fyrir fimm og hálfum tímum síðan. Eftir 4 tíma svefn.
Ég var að koma úr sturtu og þarf að fara að setja grímuna á mig... maður veit aldrei hvenær maður hittir sætan strák
Ég var að tala við fasteignasalaLjómar upp Ég er að hugsa um að selja undan mér.
Ég var að tala við fasteignasalaLjómar upp Ég er að hugsa um að selja undan mér.
Og flytja í fjörðinn?
Nei , ég er nú ekki svo dramatísk ennþá, kannski bara í bakkana til að byrja með, svona að losa um byrðarnar sem eru að sliga mig.
Hvað meinarðu með dramatík? Mér finnst það ekkert dramatískt að búa í Hafnarfirði.
Hermundur vill greinilega fá þig í fjörðinn... Skil bara ekki hvern fjandann honum kemur það við.
Ég er þá að rífa krakkana upp með rótum og unglingurinn minn er nú ekki það stefnufastur að hann tæki því vel að byrja í nýjum skóla.
Iss, það er hellingur af vandamálaunglingum í Hafnarfirði sem gætu kennt honum sitt hvað!
pakkar sínu hafurtaski og flytur inn til Ívars og Hexíu Svona jæja fyrst þú endilega vilt.sleppir unglingnum lausum inní prinsessuherbergið og út koma þær sótbölvandi
Var að koma úr sturtu
pakkar sínu hafurtaski og flytur inn til Ívars og Hexíu Svona jæja fyrst þú endilega vilt.sleppir unglingnum lausum inní prinsessuherbergið og út koma þær sótbölvandi
Auðvitað koma þær út sótbölvandi. Svona eins og alla aðra andskotans daga! Ekki að furða, með svona djöfulli orðljóta móður!