Kompás lífsins vísar víst
í vestur.
en til ferðar alltaf bíst
í austur.
Stundum rími reyni ég
rosalega að sleppa
Stundum rími reyni ég
rosalega að sleppa.
Ósköp er hún leiðinleg;
ljóðsins orðakreppa.
----------------------------
Yrkinganna öngstræti
orðaforðan hremma
Yrkinganna öngstræti
orðaforðan hremma,
Suður-þingeysk sönglæti
seinlegt er að stemma.
Velúr- mætti vinan föndra
-vélsög, þeim er sjávald skilja,
Velúr- mætti vinan föndra
-vélsög, þeim er sjávald skilja,
Ekki fyrir östan öndra
ölgerðina eiga vilja.
Venjulega vil ég ýtni
varast mikið karp og stagl
Venjulega vil ég ýtni
varast mikið karp og stagl.
Frægur er ég fyrir nýtni
fer samt inn ef kemur hagl. Glottir eins og fífl
Nú er allra veðra von
en vorið kemur bráðum,
Nú er allra veðra von
en vorið kemur bráðum.
Haraldur ætti Ólafsson
að auka við nokkrum gráðum.
Líður á vetur, lengir dag
en lítið hopa fannir.
Líður á vetur, lengir dag
en lítið hopa fannir.
Bíða eftir betri hag,
Baggalútar sannir.
Vorið kom nú víst í gær
véfrétt ein mér sagði.
Vorið kom nú víst í gær
véfrétt ein mér sagði.
Himinn bjartur tandur tær
töfrar, karlinn þagði.
---------------------------
Vorsins ómur vænting björt,
vöknum glöð til starfa.
Vorsins ómur vænting björt,
vöknum glöð til starfa.
Hækkar sól á himni ört
burt hreinsar sálararfa.
Í Kauphöllinni kætast ei
kaupahéðnar fínir
Í Kauphöllinni kætast ei
kaupahéðnar fínir
Lánin urðu lítt ókei
litla manninn pínir.
Helvíti er holan góð
hanga má þar lengi
Helvíti er holan góð
hanga má þar lengi
kola- í henni glæða glóð
grilla hrefnurengi.
Einu sinni átti ég hest
ofurlítið haltan
Einu sinni átti ég hest
ofurlítið haltan
Mjög svo þótti mér það best
matreiddi hann saltan.
Bráðum fer að búa mig
bitur fúll til vinnu.
Bráðum fer að búa mig
bitur fúll til vinnu,
heimavið þó haldi sig
hjákonan með Tinnu.
Hlákan vinnur vatn úr snjó
vætir sokka mína.
Hlákan vinnur vatn úr snjó
vætir sokka mína.
Gæzkur, nú er gutlað nóg:
gagn- verð þetta'að -rýna.
Ríddu aftur fjörðinn fram,
frændi, ekki hika.
Ríddu aftur fjörðinn fram,
frændi, ekki hika.
Vasklega í Víetnam
varðist -lega hrika-.
Hlýnar úti hlákan burt
hopar smátt og smátt.
Hlýnar úti hlákan burt
hopar smátt og smátt.
Ef hún væri enn um kjurt
allan burtu drægi mátt.
Sætir undrum, sjáðu til,
súkkulaðifýsnin.
Sætir undrum, sjáðu til,
súkkulaðifýsnin.
Áttu deit með dr. Phil?
Drepur mig nú hnýsnin.
Freistingarnar fótmál hvert
fylgja mannkyninu
Freistingarnar fótmál hvert
fylgja mannkyninu
helst mín freistar holdð bert
heldur virðist sumt þá spert.
Nú er galsi nætur við
nú er kæruleysi.