Ég hef nær alveg misst af þessum Reyni, en ef hann er að framkvæma dauðasyndir Gestapósins þá er ekki um annað að vlja en að biðja um aðgöngubann. Skrifar undir
Reynr, birki og einir er eini orginal, íslenski trjágróðurinn. Hvað skyldi Frjálslyndi flokkurinn hafa að segja um þennan þráð? Klórar sér í höfðinu
Þetta þýðir ekkert. Sá sem notar notandanafnið Reynir getur allt eins skráð sig aftur undir öðru nafni. Ekki gengur heldur að banna IP-tölu, þar sem hún gæti komið úr fjölnotendakerfi og því væru huxanlega aðrir bannaðir sem hafa ekkert til saka unnið.
Hvað svo með aðra sem hafa velt öðrum upp úr holræsakerfi orðaforða síns eða verið með tóm leiðindi, t.d. Dr. Gestapó og Jóakim, svo fáir séu nefndir? Er ekki rétt að eyða þeim út?
Það eru í raun aðeins tvær leiðir til að fázt við svona dritkjafta: Hunza þá eða svara þeim fullum hálsi (og taka þar með þátt í lýtskriftaleik þeirra).