Íbúar Baggalútíu athugið
Vegna tilrauna með nýja, öfluga skýjaframleiðsluvjel og plútóníumlýsingu verður í reynd slökkt á sólinni í dag.
Plútóníumrannsóknastofnun Baggalútíu
Svei.
Ég held ég fari aftur að sofa. Í drauminum mínum var ég að labba úti í glampandi sól og steikjandi hita á léttum sumarkjól.
Nú veit ég hverjum ég á að kenna um að ég varð að hætta við fyrirhugaða jeppaferð í dag. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það er í fínu lagi mín vegna, ég ætlaði hvort sem er ekkert að nota hana í dag.
Hvað.. Slökkva á sólinni .. SLÖKKVA Á SÓLINNI ! SÓLINNI MINNI.. Mér þætti það lámarks kurteisi að biðja mig um leyfi fyrst.. Bölvar öllum þessu óuppalda krakkaskríl sem starfar í Plútóníumstofnuninni, í sand og sement..
Æ, hvað þetta var krúttleg tilkynning...
Ég sem var hrædd um að ég væri orðin blind, en það er sem sagt fullkomlega eðlileg skýring á þessu myrkri. Það var nú gott.