Hér og þar, aðallega þar samt. Er samt ekki hægt að fá blút hérna?!
Ekki mikið hér að minnsta kosti.
Er blúturinn þá bara þar? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvaða vitleysa! Hér er nóg af blút og allrahanda drykkjum, allt á minn kostnað. Ég á rafmæli í dag. xT
Nei til hamingju maður! Skál í botn fyrir því! Stekkur inná barinn og byrjar að fikta í krananum
Jáh skál fyrir Hebba!
Hann á það svo sannarlega skilið!
xTxTxTxT
Eftir að hafa reikað um kalda veröldina, villtur og hrakinn svo vikum skiptir, hrynur inn á Kaffi Blút andlit sem sumir kannast við. Eftir að hafa tekið sér nafnið Óskar Villti aðeins of bókstaflega einn daginn hefur þessi littla sál leitað lengi að leiðinni heim, og virðist loksins hafa fundið hana.
Sæl öll, mikið er notalegt að vera kominn heim á ný, má ég fá Blút, og alveg yfirgengilegt magn af honum takk !
Kvöldið tók allt í einu stökk uppávið. Ég sakna samt Blútsins !
Skenkir sér líterskrús af Blút, og svo aðra
Skálar við Óskar
Er þér almennilega batnað elsku Óskar minn?
Á ég kannski að kyssa á bágtið?
Þú mátt finna handa mér draumadís sem er til í að kyssa á bágtið, þá færðu aukaknús og kærleiksbjarnanáttföt !
Nei til hamingju maður! Skál í botn fyrir því! Stekkur inná barinn og byrjar að fikta í krananum
Hvar hefur þú verið Skari?
Ekkert mál! Ég set auglýsingu á einkamál undir þínu nafni og redda þessu.
Verst hvað þú ert picky....
Ekkert mál! Ég set auglýsingu á einkamál undir þínu nafni og redda þessu.
Verst hvað þú ert picky....
Maður þarf ekki að vera neitt afskaplega "picky" til að líta þó út fyrir að vera það með menn eins og þig með sér á Blútnum. En hér inni hefuru samt rétt fyrir þér, þetta eru allt algjörar draumadísir og þrususkvísur !
Verst hvað það er fámennt....
Sest við púslborðið sitt og maular harðfisk með smjöri. Fær sér svo After-eight í eftirrétt
Hm, ekki sem verst. Ég er viss um að piparmyntuharðfiskur myndi seljast vel.
Sest hjá Hexíu
Hljómar og lyktar vel, má ég smakka ?
Ég er sko að tala um after eight fiskinn.Starir þegjandi út í loftið og skimar eftir ívari
Gefur Hvæsa aftereightfisk Hvað segirðu, vantar þig að tala eitthvað við Ívar?
Ha já, er honum treystandi til að strauja svona Baggalútsskoðunartæki ?