Kátir voru karlarnir
komnir í land á Dröfn.
Hetjur hafsins jarlarnir
hittu fyrir Sjöfn.
Illa oft mér gengur
enn að yrkja vel.
Illa oft mér gengur
enn að yrkja vel.
Þá strokinn er gje-strengur*
stúlkna blíðkast þel.
(* Það segja a.m.k. gítarleikarar.)
Ef hann Skabbi ákavítið
ekkert fær,
Ef hann Skabbi ákavítið
ekkert fær,
Verður afar bitur býtið
blána tær.
Skringilega skríkja
skækjurnar
Skringilega skríkja
skækjurnar.
Á ránarbotni ríkja
rækjurnar.
Og nú skal hér botna einn langhund sem rekur á reiðanum.
Að ríminu skaltu þó gæta og stuðla af kostgæfni.
Og nú skal hér botna einn langhund sem rekur á reiðanum.
Að ríminu skaltu þó gæta og stuðla af kostgæfni.
Honum saman er raðað af vangá í ljóðana leiðanum
lyktar þó framtakið mest af andlegri vanhæfni
Billa athöfn undarleg
öllum þráðum gæti stútað.
Billa athöfn undarleg
öllum þráðum gæti stútað.
Zeta Natans valinn veg*
víst ei nokkur hér fær sútað.
* Sjá hér.
Með langhunda má leika sér
og lífga upp á þræði.
Með langhunda má leika sér
og lífga upp á þræði.
Þín öll eru kappans kver,
kostuleg og æði!
Þreytan ræðst nú þung á mig,
það er bara svona.
Þreytan ræðst nú þung á mig,
það er bara svona.
Megi eiga ögn við þig,
yndislegust kona.
Lætur myrkur ljósin sig
lýsa upp?
Lætur myrkur ljósin sig
lýsa upp?
Bitrti ekki,ber ég þig
beint á hupp.
Sólin alltof sjaldan hér
sést á þessum klaka.
Sólin alltof sjaldan hér
sést á þessum klaka.
Vandinn sýnist þó hjá þér
þú munt aldrei vaka.
Djöfuls nú er dagur við
drullu mánu..
Djöfuls nú er dagur við
drullu mánu..
Vild'ég gæti fundið frið
í finnskri sánu.
Langþráð jólin liðin hjá,
langt er í þau næstu.
Langþráð jólin liðin hjá,
langt er í þau næstu.
Myrkrið brátt mun flýja frá
fjallatindum hæstu.
Ekki tekst að finna fje,
fjandans Nígería.
Ekki tekst að finna fje,
fjandans Nígería.
Lítið melt og lituð sé
landans æluspýja.
Núna verður átið át
uns á nammidaginn.
Núna verður átið át
uns á nammidaginn.
eitthvað nú á áti lát
er að kvarta maginn.
Síðan Þorri sígur inn
sviðakjömmum meður.
Síðan Þorri sígur inn
sviðakjömmum meður.
Gallsúrt eista, góði minn,
garnir þínar seður.
Sultuð bæði og sviðin fés
af sauðum étum.
Sultuð bæði og sviðin fés
af sauðum étum.
Ferleg millifótanes
svo fengið getum.
latur vel til verka er
og vinn mér fátt í haginn
latur vel til verka er
og vinn mér fátt í haginn
Endalaust ég hangi hér
heilan snauðan daginn.
Engum hérna geri gagn
glauminn bara eyði.
Engum hérna geri gagn
glauminn bara eyði.
Ég hef drukkið mikið magn
af mínu sveppaseyði.
Víða kemur víman frá
vinur kær.