Hver var hagnaður ráðuneyta á fyrsta helmingi ársins?
Hagnaður Landbúnaðarráðuneytisins var ógnvænlegur og má því þakka ómannúðlegri skattálagningu á bændur sem og tröllaukna tolla á allt sem tolla var hægt að setja á. Einnig hangaðist ráðuneytið talvert á mútum og undanskotum, pappírsfærslum og innherjaviðskiptum.
Lauslega lýtur uppgjörið svona út:
Skattar á bændur: 145.002.000.015.014 Bkr.
Tollar: 45.789.012.005 Bkr.
Mútur: 893.458.012 Bkr.
Undanskot, pappírsfærslur og innherjaviðskipti: 789.456.789.102.531 Bkr.
Fer í frekjuskast Það er ég sem legg skatta á allt og alla! Skattur á hvern þann sem mótmælir því!
Missýnist Goggnum? Eru krónur notaðar í Baggalútíu? Hvað er ein króna margar böggur? Tjahh, eða lútar?
Já, Vamban virðist notast við útlenskan gjaldmiðil. Belgískar krónur gæti þetta staðið fyrir?
Því þær eru svo sannarlega eigi Baggalýskar.
Ætli þetta hafi ekki bara verið fljótfærni hjá honum. Þetta sleppur í þetta sinn.
Annars líst mér vel á þessar tölur. Meginlega afþví að ég skil þær eki.
Er þetta kannski.... VANDAMÁL? dramandísk tónlist
Þar sem að ég gegni hlutverki nefndarmálaráðherra og utanríkismálaráðherra, varð ég að blanda þessum ráðuneytum saman á einhvern hátt. Án þess að það hafi komið fram í fjárlögum, skýrslum, plönum eða fjölmiðlum, lét ég ráðuneytin kaupa hvort annað upp til þess að byrja með og síðan keyptu mismunandi hluthafar (ég) hlutabréf á kvist og bast í ráðuneytunum, skipti á sumum þeirra, hélt sumum og seldi sjálfum mér restina. Einnig setti ég á stofn nokkra tugi stofnanna með hundruðum dótturfyrirtækja sem síðan fóru öll út í það að kaupa hvort annað, sameinast, fara í gjaldþrotaskipti, krefjast hlutar í hvor öðru auk tilfallandi kaupa á hlutabréfum í ráðuneytunum sjálfum.
Að þessu loknu þyrfti alþjóðlega nefnd sprenglærðra nefndarmálasérfræðinga og bjúrókrata til þess að ákvarða hver á hvað og hvað tilheyrir hverjum. Ekki er heldur víst hvort að þjóðin eigi enn nokkurn hlut í ráðuneytunum sjálfum.
hlær djöfullegum hlátri
----
Annars er áætluð áætlun þessi:
Gróði: 10 b.
Tap: -2 b.
Velta: 12 b.
Mútur: 800.472.654.876 b.
Svall: -12.539.854.751 b.
Laun starfsmanna: -341 b.
Laun ráðherra: -2.384.783.832 b.
Uppsafnað orlof ráðherra: 32.458.831.093 b.
Fundasetulaun ráðherra: -2.008.537.283.450 b.
Önnur fundarsetulaun ráðherra: óljós upphæð
Peningar faldir í kerfinu: óljós upphæð
Styrkir til menningarstarfsemi: -16 b. og Prins Póló
----
Ég vildi óska að ég gæti veitt meiri upplýsingar um fjármál ráðuneytana, en því miður þurftu starfsmenn Sameinaðrar Fjármála- og Skjaladeildar Nefndarmálaráðuneytis og Utanríkismálaráðuneytis (S.F.S.N.U) að fara í sumarfrí.
pfff ég get reddað svalli og þið þurfið ekkert að borga fyrir þetta. Nokkrar sálir og þá er þetta ykkar.
AHA! Það vill svo skemmtilega til að ég rek sálusöluþjónustu!