Nú styttist óðum í þessi helgu tímamót. Senn mun mánaðar afmælis eftirminnilegrar árshátíðar Gestapóa minnst. Á mínu heimili mun fram borin buffuð villibráð af Fljótsdalshéraði, ásamt hrútaberjasultutaui úr Þjórsárdal, item Jólabjór úr Gullabúð, af þessu tilefni.

Til hamingju með það Leiri Öfundast yfir að hafa ekki mætt... hvernig var þessi Árshátíð, svona miðað við aðrar samkundur sem þú hefur farið á?
Hvar er þessi Gullabúð?
Hvar er þessi Gullabúð?
Og það sem skiptir kannski öllu máli. Er hægt að kaupa demanta þar? Eða kóbalt?
-
Kæri Skabbi, Regína og Limbri.
Hér er margháttaður misskilingur á ferðinni.
Ég get ekki gert neinn viðhlýtandi samanburð á umræddri árshátíð og öðrum sem ég hef mætt á eða ekki mætt á, þar eð ég var ekki á téðri árshátíð.
Hins vegar stofnaði ég, um árshátíð Baggalútíu 2007, sérstakan fyrirspurnarþráð; "Hvernig var á árshátíð?", þar sem ég er sérstakur aðdáandi og áhugamaður um hana - og var á árshátíð 2006, sællar minningar - þar eð ég átti ekki heimangengt vegna þess að ég er fluttur á ónefndan stað í nyrstu afdölum. Á þeim eðla þræði fregnaði ég að um þvílíkan tímamótaviðburð hefði verið að ræða og svo margar eftirminnilegar uppákomur að satt best að segja, þá hraut mér hagl úr auga að hafa ekki verið með.
Í annan stað hélt ég að það væri ljóst af samhenginu að ég er að vísa til hæstvirst heilbrigðisráðherra þegar ég nefni Gullabúð og Jólabjór.
Lifið heil.
HELGAR KLUKKUR???
Skemmileggur allar helgu klukkurnar
RAWR! Eruð þið að reyna að kála mér, kúkarnir ykkar!
Mér finnst þetta umræðuefni afskaplega ómerkilegt og finnst skrýtið að einhverjir taki þátt í þessum gamaldags íslenska afdalahúmor Leira.
Mér finnst þetta umræðuefni afskaplega ómerkilegt og finnst skrýtið að einhverjir taki þátt í þessum gamaldags íslenska afdalahúmor Leira.
Ég vil biðja þig, hæstvirtur Árni Jólatré úr Holti að koma þér út af mínum umræðuþræði með þínar neikvæðu hægri sinnuðu bylgjur og norskættaða skítaplott. Þráðurinn er gersamlega frosinn eftir að þú komst með þitt neikvæða og rætna innlegg. Þess á ekki svo ágæt umræða sem ég stofnaði hér ekki að gjalda. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hvað er svo í eftirrétt hjá þér? Huxar um heimabakaðan ís og sleikir út um