Það er erfitt að tala um reglu í því sambandi. Maður verður bara að spila þetta eftir eyranu og treysta dómgreind sinni.
Samkvæmt þeirri mælistiku eru Íslendingar slefandi bavíanar sem búa í lausgirtu bananalýðveldi en Svisslendingar fágaðir heimsborgarar sem búa í háþróuðu menningarríki.
Ætli Hollendingar séu þá ekki einhversstaðar þarna á milli.
Ég hef talsverða reynslu af hollenskum almenningssalernum og fullyrði að þeir standa nálægt Svisslendingum í fágun og hámenningu.
Já líklega. En hvað með þegar það eru 6 skálar og kantarnir eru báðir uppteknir? Hvaða regla gildir þá?
Sækir kennslubók í daglegum þvaglátum karlmanna Samkvæmt þessu hér.. Opnar bókina og byrjar að fletta. Finnur réttan stað og byrjar að lesa ... Þá gildir sú regla að meta í snarhasti hvor kantmaðurinn girðir minna niður um sig þegar léttir hann á sér. Sé t.d. skálunum raðað í númeraröð frá vinstri til hægri og kantmaðurinn á skál 6 sé stífgirtari þá bera að velja skál 4 en eigi 3 við slíka aðstæður. Lokar bókinni
Hæfæv fyrir því að sleppa handþvotti!
Stendur á miðjum þræði með hendina dinglandi í lausu lofti. Í fjarska heyrist í söngtífum. Þornurt fýkur hjá.
Ég held að það standi alveg örugglega í stjórnarskrá Sameinuðu Þjóðanna að það skuli ávallt vera bil á milli hlandskála.
Ég á allavega bol sem er með mynd af þremur hlandskálum og tveir gaurar nota skálarnar á sitthvor endanum og miðskálin er tóm. Fyrir neðan stendur: ,,Stick To The Code!'' ÉG þori að fullyrða að þessi regla sé æðri Shotgun-reglunni.
Ég fór á klósettið á Sólon um daginn, þar eru tvær klósettskálar hlið við hlið ... ekkert á milli, ekki einu sinni smá skilrúm. Við vinkonurnar hlógum svo mikið að við kúkuðum næstum... hlið við hlið.
Enda er alltaf endalaus röðin þar á klóstið, bara ein nothæf hlandskál, og það leiðir nátúrulega til þess að maður nennir ekki að bíða og fer út að pissa, sem leiðir til þess að maður verður sektaður eða handtekinn. Sólon er sem sagt að stuðla að aukinni glæpatíðni í miðbænum.
Sólon lætur ekkert gott af sér leiða.
Þar er ég hjartanlega sammála.
Ég man eftir einhvurju sem líktist risavaxinni þakrennu í stað hlandskála. Þetta var í Hreðavatnsskála. lætur sig dreyma um gömlu góðu dagana
svoleiðis hlandskál notaði ég síðast á föstudaginn var.
Ég hef talsverða reynslu af hollenskum almenningssalernum og fullyrði að þeir standa nálægt Svisslendingum í fágun og hámenningu.
það er þá eitthvað alveg nýtt. Ég bjó einu sinni í téðum Niðurlöndum og fannst ekki mikið til snyrtimennsku þeirra koma. Hey, bíddu við, ah, ég fell alltaf í kaldhæðnisgildruna hjá þér. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Skál hlandskál.
Held að allt sé betra en að pissa í klósettið á McDonalds í Uppsala. Maður varð að vera í stígvélum og vaða yfir læk og pappír. Samt var jafnvel nýbúið að kvitta á miða á veggnum um að það hafi verði þrifið Klórar sér í höfðinu
Hvenær var það Andvari? Jég kom þar í des '05 og þá var það fínt!
Ég bjó þarna 2003-2004.
Fegin að heyra að það hafi skánað, nema að þu hafir verið einstaklega heppinn þegar þú fórst á klósettið þar.
Kannski var það bara þrifið á 3 ára fresti?