HAKUCHI!
Hvæsir á Hakuchi
Viltu laga þetta strax!
Hvaða hvaða, ég er bara að prófa þanþol nýju vindtúrbínunnar.
Einn umgang í viðbót. Haldið ykkur börnin góð.
Trekkir upp vindglæðingsgangvirkið, stillir inntak túrbínunnar á 4500 kvartsíbel
Heldur sér í ljósastaur og flaksast til eins og, jah, önd í vindi
Heldurðu að það sé nokkur von til að fá þig til að slökkva á bannsettri veðurvélinni? Helst meðan hún er stillt á rólega jólasnjókomu. Svo má kveikja á henni aftur í janúar og þá máttu leika þér aðeins meira með stillingarnar!
Bendir Hakuchi á nýjan takka sem á stendur ARMAGEDDON.
Ég veit þú vilt prófa...
Armageddon hefur ekkert með veðrið að gera.
Þaraðauki hefur mér alltaf fundist Armageddon vera fisktegund.
Ég var nú bara að spá í hvað vont veður yrði hjákátlegt í samanburðinum...
Og hver er kvótinn á armageddum í ár?
Ætli það sé nema fjórðungur úr tonni. Það má ekki færa of mikið af þeim upp á land, það býður víst hættunni heim samkvæmt gömlum þjóðsögum.
HAKUCHI!
Hvæsir á Hakuchi
Viltu laga þetta strax!
Hvaða hvaða, ég er bara að prófa þanþol nýju vindtúrbínunnar.
Einn umgang í viðbót. Haldið ykkur börnin góð.
Trekkir upp vindglæðingsgangvirkið, stillir inntak túrbínunnar á 4500 kvartsíbel
Heldur sér í ljósastaur og flaksast til eins og, jah, önd í vindi
Heldurðu að það sé nokkur von til að fá þig til að slökkva á bannsettri veðurvélinni? Helst meðan hún er stillt á rólega jólasnjókomu. Svo má kveikja á henni aftur í janúar og þá máttu leika þér aðeins meira með stillingarnar!
Samkvæmt leiðbeiningunum þarf ég að keyra vindtúrbínuna á háum styrkleika um nokkurt skeið til að slípa og samhæfa hana við aðra hluta maskínunnar. Þið getið þó horft á björtu hliðarnar og séð að þessi nýja túrbína svínvirkar, svo til hnökralaust.
Er ekki hægt að stilla maskínuna þannig að úrkoman, sem fellur þessa daga og mun halda áfram að falla, verði snjór en ekki rigning? Ég vi fá snjó, mikið af snjó, hvít jól og allt.
Það er alltaf möguleiki. Að sjálfsögðu mun ég stilla á snjókomu yfir jólin.
Gefur frá sér vellíðunarstunu Takk fyrir það, þú ert ágætur.
Fínt veður þar sem ég er, stillt og bjart en hins vegar geysar stormur og hríð í höfðinu á mér.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það er alltaf gott veður í Dalnum.
Ég vildi að ég hefði það svo gott. Þetta fjarðarrassgat hér er fyrir opnu hafi og undanfarið hefur verið rok og mígandi rigning. Eins og það getur nú verið fallegt í næsta firði, ég hefði betur aldrei farið þaðan.
Það er vor í lofti.
Er vorið ekki full snemma á ferðinni í ár?
Það er vor í lofti.
Er vorið ekki full snemma á ferðinni í ár?
Jú enda reikna ég með að það vetri aftur fljótlega. En það er gaman að fá sýnishorn af vorinu.
Það er vor í lofti.
Er vorið ekki full snemma á ferðinni í ár?
Jú enda reikna ég með að það vetri aftur fljótlega. En það er gaman að fá sýnishorn af vorinu.
Faðir vorinu þá?
Nei það er nær því að vera móðurvorið.
Sbr.
Móðurjörð, hvar maður fæðist.
Mun hún eigi flestum kær.
Þar sem ljósið lífi glæðist
og lítil sköpun þroska nær.
S.B.
Hjer er engu líkara en komið sje vor; logn og hlýtt en afar drungalegt. Áðan brugðum vjer oss út í minniháttar innkaupaleiðangur og heyrðum þá skógarþröst syngja sem á vori.