Nú hef ég í tvær vikur heyrt lestur sögunnar Vansæmd eftir J.M. Coetzee auglýstan á gömlu góðu gufunni. Ég hlýt að hafa heyrt nafnið Coetzee lesið í það minnsta tuttugu sinnu, en aldrei er það borið fram eins. Kötsí, Kútsí, Kóetsí, Kötse eða einhvurn vegin öðru vísi. Getur einhvur sagt mér hvurnig bera eigi þetta fram?
Samkvæmt bestu vinkonu minni, henni Vikkí Pedíu er nafnið hljóðritað svona: [kʊtˈsi:] eða [kutˈsiˑe] ef um er að ræða framburð á Afrikaans.
Það er svo hægt að skemmta sér hérna við að reyna að ráða fram úr því hvað í fjáranum það þýðir...
{kútseei} ef það er eins og í Hollenskunni...
[Ketill] þætti mér ágætis hljóðritun. Hnussar
{kútseei} ef það er eins og í Hollenskunni...
Og ég vísa í það að Afrikaans er afbrigði af Hollensku
{kútseei} ef það er eins og í Hollenskunni...
Og ég vísa í það að Afrikaans er afbrigði af Hollensku
Það er rétt. Innfædir afríkubúar tala ekki Afrikaans og eru í raun ekki par hrifnir af því máli.
Það er aðallega hvítt fólk t.d. í Suður-Afríku sem talar Africaans og eru afkomendur þeirra Hollendinga sem eignuðu sér landið fyrir ófáum árum.

Akkúrat, þetta gerðist reyndar í kjölfar búa-stríðsins sem háð var í Suður-Afríku. Það varð til þess að hvítir komust til valda og Apartheid varð að veruleika. Apartheid er einmitt Hollenska og þýðir aðskilnaður.
Vill einhver eyða þessu innleggi fíflsins hér á undan og helst fíflinu líka. Ég vil geta vafrað hér um og smellt á linka án þess að eiga á hættu að fá svona vibba upp á skjáinn. (sem betur fer voru börnin víðs fjarri þegar ég smellti á þetta).
Sammála Wonko, mig grunar hv2ð þessi linkur er og klikkaði því ekki á hann. og þetta á ekki heima hér, og ekki heldur óskrifandi úrgangurinn sem póstaði þessu.