Það hefur oft tíðkast að menn yrkja um fréttir af svokölluðum falsmiðlum... ég legg til að við yrkjum um þær einu réttu fréttir, þ.e. fréttir Baggalúts.
Ingi á fyllerí fór
ferlega kauðinn sá drakk
drapst hann og dauðinn var stór
á drykkju að lokum hann sprakk.
Ég er ekki í yrkingarskapi, en vil veg þessa þráðar hærri. Flyt ég því hingað fyrstu Ort um fréttina vísuna mína af þeim þræði - en hún var auðvitað um Ríkisfrétt:
Bækur hélt ég bezta kostinn,
bar hann við með rjóða kinn.
En helst nú vil ég hafa í matinn
handrit færð með blóði á skinn.