Brad Paisley? Ég er næstum því viss að þetta sé rétt
Góður! Þá vantar mig bara tiltillinn á lagið, því það er jú lagið sem spurt er um.
Brad Paisley - Whiskey Lullabye Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Það er rjett. Það er þá komið að þjer, veldu nú vel.
Mighty Quinn með Manfred Mann?
Reyndar var það lag samið og upphaflega flutt af Bob Dylan, eins og svo margt annað.
Alltaf gaman þegar maður lærir eitthvað nýtt hér. (Og hvað er að sjá - ég á þetta meira að segja í safninu.)
Lagið fjallar um undurfagra stúlku sem getur tekið mann frá annari konu. Hann talar um hana í svefni og getur ekki hætt að hugsa um hana.
Joelean?
Mjög nálægt! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Er það þá stór(.)(.)stjarnan Dolly Parton sem um ræðir?
Jú við erum að ræða um þá draumagyðju
Við skulum ekki gleyma að stafsetning er mjög góð.
Er það þá stór(.)(.)stjarnan Dolly Parton sem um ræðir?
Ég mana þig til að gera broskall með tvípunkti og sviga á eftir þessu innleggi.Starir þegjandi út í loftið
Sko þetta er öðruvísi! Þetta er húmor. Glottir eins og fífl
Er það ekki skrifað Jolene?
Trúi ekki að nýliðinn sé svona smámunasamur.
Joelean eda Jolene, mikill munur. Grágrímur þú átt leik.
andskotinn... þetta er vesen.
jæja.
Maður er drepinn, annar maður handtekinn og vitni eru sammála um að hann hafi verið sá sem flúði af vettvangi og er hann dæmdur til dauða og hann segir ekkert því fjarvistarsönnun hans er sú að sama kvöld var hann með konu síns besta vinar.
Og getiði nú.
Þetta kannast ég við.
Over the hills and far away með Nightwish?
Svei. Innihald textans er samt það sama.
Nema ég held reyndar að hann deyi ekki... heldur sitji bara inni í 10 ár eða svo.