Horuð skepna er hrákasteik.
Hor úr nösum lekur.
Horfi ég á HM-leik
hornið Beckham tekur.
Úbbs, var sein...
(Með) horið út um hálfa kinn
hóstar, ekki keikur.
Einskis nýtur auminginn
er svo mikið veikur.
Tekur David tóbakshorn
og treður stíft í nefið
kynnt sér hefur fræðin forn;
það fælir burtu kvefið.
Kvefið mig í koju lagði,
kaldan dag í nóvember.
Hóstandi og hás ég þagði,
og hvolfdi í mig sénever.
Sjenever ég veit ei hvað er (é kom þarna fyrir bragfræðinnar vegna!)
hvurslags drykkur er það nú?
Fæ mjer frekar sop' af líkjer
frekast vil jeg þá Bols blú
[Það er eitthvað óljóst hvernig þú vilt hafa þetta... prófaðu að líta inn í skólastofuna og við skulum segja þér til... Skabbi]
Uuuuhh... Nú verð ég að spyrja, hvaða bragfræðibók lærðir þú eiginlega? Hoppar yfir
Séniver er syndarinnar
sóðalegi drykkur.
Drekka'nn bara fjandans Finnar, (afsakið kæru finnsku póar, ég meina sko ekkert með þessu...)
svo fjarri haldið ykkur.
Ykkar skál ég skenki nú
skal að málum linna.
Djúpt á tálar dragir þú
mig degi hálum finna.
Finna vil ég glóa gull
gömul blöð og fleira,
þesi vísa er bansett bull
bragdlaus firir eyra.
Eyrna milli eitthvað fann,
undur vill það kalla.
Eitthvað Lappi kannski kann,
kannski, en samt varla.
Varla skildi skammast hér,
skunda frekar annað.
Skammast bundnu betra er,
brúka, til þess hannað.
Hanna sumir leirug ljóð,
og láta hér á vefinn.
Aðrir laga ljúf og góð,
og lagleg vísnastefin.
Vísnastefin vel ég yrkja kann,
veitir það mér gleði, yl og fró
Níð ég aldrei sem um nokkurn mann,
nokkur hafi færin gefist þó.
Þó aðeins hafi áður lært,
og eitthvað gamalt munað.
Ykkar hafa vísur vært,
veitt mér frið og unað.
Unaðstund með ungri mey
öllu spillti.
Komst að því mitt hold er hey
hún mig villti.
Villtist ég um víðan heim.
varla festi rætur.
Engan gaf ég gaum að þeim,
þó gleddu ykkar dætur.
Dætur á ég aðeins þrjár
út um víða heima.
Flugu burtu eftir ár
enga þurfti að geyma.
Geyma átti tátur tvær
tvöföld varð það byrði.
Fjandi er nú karlinn klár
kötturinn einskins virði.
Virðist þetta vonlaust spil,
og veiti slagi fæsta.
Ekkert góði gerir til,
að gefa bar' í næsta.