Nornin og Muss S. Sein fá rafmæliskveðjur.
Þetta rafmæli er nú frekar grunsamlegt http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=529
Norninn fær indælis rafmæliskveðju.
Næturdrottningin, Hlebbi og Kekkonen fá öll kærar afturvirkar kveðjur. Farðu nú að láta sjá fésið á þér, Hlebbi!
Nornin og Muss fá kærar núvirkar kveðjur. Farðu nú að láta sjá fésið á þér, Muss!
Ég tek líka undir með Grýtu að þessi FeitiMafíuósi er einstaklega grunsamlegur og laumupúkalegur. Ég ætla að kjósa hann til að reyna að fá viðbrögð frá honum.
Kýs FeitaMafíuósann
Svo virðist sem að Nornin eigi þriggja ára rafæmli í dag. Óska henni til hamingju með þennan stóra áfanga.
xT
Til hamingju með rafmælið elsku bestasta Nornin mín! Mikið er fyndið að settur dagur sé einmitt á rafmælisdaginn þinn.
Allavegana.... elska þig endalaust mikið dúlla!
Knúsar Nornu og gefur henni allt sem hana langar í
Til hamingju Norna!
Elsku Nornin mín! Hjartans hamingjuóskir með árin þín þrjú - þú berð þau auðvitað sérstaklega vel eins og aðrar nornir. Glottir og mallar heiðurskakó í tilefni rafmælis Nornarinnar
Innilegar hamingjuóskir á rafmælinu þínu elsku Norn.
Til hamingju gamla!
Hamingjuóskir með rafmælið kæra Norn.
Tárast næstum (hormónar örugglega)
Takk elskurnar mínar, það er svo gaman að eiga rafmæli... verst að þau eru bara tvisvar á ári !
Knúsar alla viðstadda og bíður til samsætis á Kaffi Blút
Sendi endalaust margar ástarkveðjur út um allt svo að allir hérna inni verði bleikir og sykurhúðaðir. <Ljómar rosalega bleikt upp> Svo fá allir ofsalega sæta gúmmelaðitertu í tilefni af áfangunum. Annar áfanginn ætlar að vísu að standa örlítið á sér en við fögnum honum bara samt. xT
Til hamingju með afmælið Norna!
Ég er með frábæra gjöf handa þér því ég veit nákvæmlega hvað þig langar í!
Gefur Nornu fæðingu í rafmælisgjöf
Til hamingju með rafmælið, kæra Norn. Hraðar sér til veislu á Kaffi Blút
Sendi hér með lopalega rafmæliskveðju frá Lopa til Nornarinnar.Færir norninni pínulitla lopapeysu
Sérstakar rafmæliskveðjur fær Nornin!