Nei, ekki Donnie Brasco eða Snatch...aðalsöguhetjan er lögreglumaður sem er í fyrstu ósköp venjulegur maður, en smám saman lifir hann sig full mikið inn í heim glæpamannanna og verður hálf geðveikur með tímanum...
Bad Lieutenant?
Serpico?
Ekki eru glæpamennirnir fótboltabullur? Mér finnst eins og maður ætti að vera löngu búinn að fatta þetta, en samt er enginn neisti.
Getur hugsast að þetta sé franska ræman I.D.? Eða var hún Bresk?
Getur hugsast að þetta sé franska ræman I.D.?
hahaha...gef þér rétt fyrir þetta...þetta var enska ræman I.D.
Þú átt spurningaréttinn...
Okei, hér er einn úr ræmu sem gerð var um svipað leyti og ID, en gæti skeikað nokkrum árum:
"Önnur verðlaun eru hnífasett. Þriðju verðlaun eru að þið eruð reknir"
Já, já auðvitað er þettað rétt hjá þér. Það er algjört skylduáhorf á Glengarry Glenn Ross hjá öllum þeim sem stunda beina sölumennsku.
En, Hakuchi þú þarft þá að....
Hakuchi stendur sig ekki alveg nógu vel um þessar mundir, en honum er fyrirgefið sökum veðurblíðunnar.
En hér er einn hugsanlega mjög léttur úr vinsælli kvikmynd sem sýnd var fyrir nokkrum árum síðan:
"Ég gat bara ekki trúað þvi að hún hefði munað nafnið mitt. Sumir af mínum bestu vinum vita ekki einu sinni hvað ég heiti."
Something About Mary?
Ég biðst afsökunar á að hafa gleymt frasanum. Þegar ellin færist yfir fer maður að gleyma svona hlutum.
Eitthvað um Mary mun rétt vera.