ég kasta kveðju
Sun Tzu elskar mokka og
súkkulaðibit
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Heill vertu, forni stríðsspekingur. Megir þú haga þér skikkanlega.
Leggur frá sér hálfskrifaða stríðsyfirlýsingu.
Hvað þá? Haga mér? Já, að sjálfsögðu!
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn með hefðbundnum fyrirvörum. Skál !
Neitar að bjóða nýliðann alveg velkominn fyrr en hann hefur sýnt fram á að hann sé fær um að hefja setningar á stórum staf og enda þær með punkti.
Jahérna! Ég gerði smáræðis undantekningu þar sem ég var að skrifa hæku (heiðarleg tilraun allavega). Vona að engin beri kala til mín fyrir slík mistök. Klórar sér í höfðinu
Sem hæka er þetta nú sérdeilis prýðilega samið, þú ert einmitt heppinn að ég hef dálæti á slíkum kveðskap! Og nú þegar ég hef sannreynt að þú hefur ágætis hæfileika til myndunar hástafa á réttum stöðum býð ég þig aðeins meira velkominn.
Hvað er annars að gerast, hingað hrúgast inn hæfileikaríkir og vel skrifandi nýliðar. Ég sem ætlaði að taka duglega á í nýja embættinu mínu! Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Velkominn Sunni. Ég vissi ekki einu sinni að þetta væri hæka. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Gefur Sunna mjólkurglas
Forn austurlensk ljóðlist. Ljóðin samanstanda af þremur línum, fyrsta og síðasta eru 5 atkvæði hvor og miðlínan er 7 atkvæði. Yfirleitt er efniviðurinn náttúrulýsingar en í raun er hægt að setja hvað sem er í þetta einfalda form. Lítur á það sem góðverk dagsins að auðga menningarvitund Hvæsa
dáist að góðsemi Önnu pönnu
Ljómar upp er hann fattar að skrattans japanarnir eru ekki alltaf að semja hækjur