Ekki var það hann, en ég koma auga áðan á ansi skemmtilegan texta svo, eflaust á skjön við allar reglur, ætla ég að birta nýja spurningu.
Hver sagði þetta: "Árið 2005 verður Rúv ekki til heldur einungis Íslandsdeild BBC.
Ástæðan fyrir því er sú að um mitt ár 2004 mun vinstrisinnaður byltingarsinni ná valdi yfir íslensku ráðstjórninni með vopnaðri byltingu (eftir að hafa predikað í áratugi um að Ísland eigi að vera vopnlaust svo hann eigi auðveldara með að ná völdum). Eftir að hafa þjóðnýtt bankakerfið og Dómínós og gert bæði gjaldþrota á einum mánuði og standandi frammi fyrir reiðum almúga og stúdentauppreisnum, ákveður einræðissherrann að hefja nýtt þorskastríð gegn Bretlandi til að auka þjóðerniskennd og bægja athyglinni frá ömurlegum árangri í innanlandsmálum. Ríkisráðið gerir tilkall til alls Norður Atlantshafsins og gerir tilkall til lögsögu upp að landsteinum Bretlands. Í byrjun janúar 2005 gerir Varðskipið Týr innrás á tómt sker, 2 mílur frá Norðurhluta Skotlands og hertekur við miklar popúlískar undirtektir á Íslandi.
Bretland lýsir yfir stríði gegn Íslandi þann 2. janúar 2005 og hefur unnið fullnaðarsigur og innlimað Ísland í breska heimsveldið þann 3. janúar, eftir að hafa sent 5 hermenn með Iceland Express til landsins þar sem þeir hertóku einræðisherrann og tóku öll völd í ljósi augljósra vopnayfirburða sem fólust í rambóhnífi, 9mm Glock byssu og einni Gatling hríðskotabyssu sem þeir settu upp á Arnarhól.
Í ágúst er Rúv lagt niður, enda talið of vinstrisinnað popúlistafyrirbæri og því ógn gegn öryggi ríkisins (breska). Í staðinn kemur alvöru útvarp BBC Iceland. Gísli Marteinn verður aflífaður af einræðisherranum því honum þykir hann vera of smeðjulega ljósálfalegur og verður almennt talið að það hafi verið eina gáfulega ákvörðunin sem þessi misheppnaði harðstjóri hafi tekið.
Var þetta nógu skýrt?"
Ég ætla að segja Glúmur á sínum æskuárum
Þá segi ég næst málefnalegasta (að mínu mati) HAKUCHI!!
Ég hefði giskað á Glúm...heheh...er þetta Úrsus Akureyrensis?
Þá segi ég næst málefnalegasta (að mínu mati) HAKUCHI!
Rétt. Ég byrjaði nú reyndar á Úrsusi, en þessi þótti mér nægilega kosturlegur til að koma í staðinn.
Frelsishetjunni ber nú að spyrja.
Ég tek fram að þessi spádómur er enn í gildi. Miðað við það að stjórnarandstöðunni hafi verið sparkað af fundum geri ég fastlega ráð fyrir að þessi vinstri sinnaði harðlínumaður muni grípa til sinna ráða. Sjáum hvernig þróunin verður á næstu dögum.
VEIIII ég vann loksins eitthvað.
Ég tek mér örlitla pásu til að finna eitthvað sniðugt.
Vertu nú ekki að þessu dóli Skabbi minn og þokaðu þér yfir á spurningaþráðinn. Þú átt leik.
Hér kemur það: Dúrúmdish
"Þegar hóf er annars vegar þá er Frelsishetjan bak við hurð!"
Neibb neibb
Gamalgróinn notandi? Eða er of snemmt fyrir vísbendingar?
Ég giska samt á Muss S. Sein
Blástakkur? jæja Dio...komin spurning í spurningaleik Tinna...
Nei nei þetta er ekki komið. Þekktur einstaklingur á Baggalút.