Blöndós við bakkana stendur
bölvandi sitja þar endur
Blanda þá brýst yfir lendur
bílstjórinn Amma er kendur.
Eftir gresjunni mjakast maður
móður og þeyttur fýr.
Skagaströnd er staður
stórfenglegur og hýr.
Hallbjörn við köntrí kenndur
kann á flestu lag.
Af reynslunni byssubrenndur
berst hann þar sérhvern dag.
Ég leyfi mér að leggja stóra lykkju á hringvegsferð ykkar og koma við í heimabyggð minni
Ýsufjörður afbragð sveita,
einatt hugsa ég til þín.
Til bernskuslóða býzt ég leita
blessuð heimasveitin mín.
Bolafjall og blautur fiskur
í Bolungarvík.
Kleinufat og kúfaður diskur
kjaftshögg engu lík.
Það er í raun bara ein leið út úr Bolungavík (ef sjóleiðin er ekki tekin með)...
Undir háum hlíðum rann
og hló þar kaldur valur.
Blikar Óshlíð, birtist hann
barlómur Hnífsdalur.