Eftir mikið bréfaskrum, blýants og yddarakaup hef ég ákveðið að fresta áætlaðari stjörnuferð. Í ljós kom að ég þarf að passa þennan tiltekna dag (þ.e. 29 okt.) og auk þess hefir mér verið bannað að neyta píputóbaks um óákveðinn tíma af ríkinu (tóbak er óhollt og getur skaðað þ.á.m. frjósemi, lungu ofl. (svo maður fari að tóbaksvarnarlögum)).
Í ljósi þessarar tilskipunar býst ég við að láta lífið innan fárra daga.
Ef ekki þá greini ég fá því síðar.
Pípan, takk fyrir.
klórar úr sér augun af gremju
Láttu ekki Þorgrím "göbbels" Þráinsson blekkja þig. Rístu upp gegn kúguninni og reyktu sem þér sýnist.
Á einhver eld? Ekki get ég notast við brauðristina.
Ég skal senda þér kóbaltkveikjara sem ég hef nýlega lokið smíði á.
Hann er þeirri náttúru gæddur að þurfa aldrei áfyllingu.
Seilist eftir kveikjaranum og kveikir í amerískum vindlingi....
Ég skal íhuga það Sverfill góður, en mér þætti gaman að vita hvað ritstjórninni finnst um allt þetta, frestun ferðarinnar og tóbaksumræðuna?
Frestun ferðar? Ferðum verður ekkert frestað út af þínum einkaskuldbindingum væni minn. Út viljum vér. Mig er farið að klæja í byssufingurinn, enda get ég ekki beðið eftir að prófa að salla niður illar geimverur með kvarkatætaranum mínum. Að ég tali nú ekki um Jónaandefnisfallbyssuna, hún ætti að geta tortímt heilu tungli.
Ég man eftir því að geimverurnar frá plánetuni Transylvaníu þóttust ansi illskeyttar hér áður fyrr þegar á stundaði Kaffi Austurstræti samhliða þeim, voru sífellt með einhvern móral og læti við þjónustufólkið og hræktu munntóbakinu sínu á gólfið.
Ég legg til að við gerum það að okkar fyrsta viðkomustað.
Eg hefir ákveðið að fresta ekki ferðinni hún verður. 29 oktober verða tímamót í íslenskri geimferðasögu. Lestin verður full af Half 'n' Half og einhverjum matarbirgðum líka. Nánari tækniupplýsingar um flaugina má finna í nýja Iceland Airwaves bæklingnum á blaðsíðum: 6, 7, 8, 31, 33 og 40. Þar er að finna þær upplýsingar sem þið þurfið ritaðar á sama dulmáli og þjóðverjar notuðu í seinna stríði í júní 1943, held ég.
Pípan
Í sambandi við viðkomu og ruddaskap í Transylvaníu vil ég benda á að ég átti ansi góð samskipti við þessa indælu gesti. Þeir reyndar kláruðu blóðmörina mína en það gerði ekkert til, þeir borguðu til baka með ágætis hnífapörum sem eru listasmíð.
Indælir? Þeir eru ekkert indælir frekar en ég er eskimói!
Þeir hafa eflaust verið kastandi þvagi á alla lóðrétta fleti sem þeir hafa komist í þegar þú leyst frá.
neisko ertu eskimói? Ég hefði getað svarið, af myndinni að dæma, að þú værir franskur bóhem á fyrstu áratugum 20. aldar.
Írskur upphaflega reyndar, fannst bara sopinn góður og flutti til Parísar á flippi.
Mamma mín var frá Norður-Írlandi, ekki að það skipti neinu máli.
En úbbs, dóttursonur minn (13) var að koma úr ríkinu, best að hjálpa honum yfir tröppurnar Guarratzki draugalemúrinn minn nái honum ekki.
Stekkur af stað en hrasar á nærfatakörfunni
Úbbosí, gleymdi að skrá mig inn þetta er ég þarna fyrir ofan.
(Ríkið er lokað...) Grenjar úr sér augun