Ég var að býsnast yfir því að það er enginn sem heitir Butraldi hér á lútnum
Mér finnst nú að það þyrfti að vera einhver Butraldi á meðal vor, þó svo um brunnmyg væri að ræða.
Ætli ástæðan fyrir því að enginn heiti Butraldi sé ekki sú að lítið er hér um menn sem eru allt í senn einhleypingar, miklir menn vexti, rammir að afli, ljótir í ásjónu, harðfengir í skaplyndi, vígamenn miklir, nasbráðir og heiftúðugir.
Og þó?
Ætli það sé ekki af því að lítið er hér um menn sem eru allt í senn einhleypingar, miklir menn vexti, rammir að afli, ljótir í ásjónu, harðfengir í skaplyndi, vígamenn miklir, nasbráðir og heiftúðugir.
Og þó?
Ja, eitthvað af þessu á svosem við Ívar Sívertsen...Glottir eins og fífl
Og það sem ekki er feitletrað getur svosem átt við mig.
Hellir í Hardy´s á línuna
Sussusvei, þetta á ekkert við um hann Íbba. Hann er vænsta skinn. Hins vegar sýnist mér þetta eiga alltsaman óskaplega vel við Hvæsa, það er rétt... Starir þegjandi út í loftið og íhugar hvernig heimurinn væri ef Hvæsi tæki upp á því að skipta um nafn Nei annars. Gleymum þessu bara.
Hananú.
Reyndar var það bara spurning um hvenær einhver Butraldi dúkkaði upp, ekki hvort. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Og hver skyldi vera á bakvið þessa apagrímu ?
Ég finn ívarsfílu...Glottir eins og fífl
Ég get fullyrt að það er enginn á Sívertsen-deTrix heimilinu með þessa grímu.
Er þessi þráður ekki orðinn ógildur, a.m.k. formlega sjeð, nú er Butraldi er til á Lútnum ? Klórar sjer í höfðinu og veltir fyrir sjer hvort þetta sje ógilt innlegg
Butraldi??? er það einhver leðurhommi eða?
Butraldi "brunnmigur" Brúsason kemur fyrir í Gerplu.