Úlfamaðurinn fær rafmæliskveðjur frá Lopa. Færir Úlfamanninum lopapeysu unna úr úlfahárum af úlfamanninum sjálfum!
Ég færi Úlfamanninum varfærnislegar rafmæliskveðjur í tilefni dagsins.
Úlfamaðurinn fær kveðjur. Vonandi er hann búinn að jafna sig eftir meðferðina sem hann fékk frá vissum aðilum hérna. Aðilum sem kunna ekki að haga sér eins og fullorðið fólk, þó svo það sé komið á þriðja tug aldursára.
Engar kveðjur héðan. Ég tel það merki um fullorðnun að geta tekið þátt í því samfélagi sem maður tilheyrir og tekið ábyrgð á orðum sínum og gjörðum, það gat Úlli því miður ekki og viðbrögð sumra voru jú harkaleg en að vissu leyti réttmæt. Maður situr ekki undir hverju sem er, frá hverjum sem er.
Hann á heima einhvers staðar allt annars staðar en á plánetunni jörð.
Ef þú saknar hans svona mikið geturðu skoðað þetta, Jarmi. Þú sérð líka hversu fólk er hrifið af honum og hans langlokum þarna.
Sjálfur hefði ég kosið að Gestapóar hefðu náð algjörri samstöðu um að hundsa þetta fyrirbæri alfarið, enda á bullið í honum ekkert erindi á þennan vef ... þannig er það nú bara - væni þeir mig um hroka sem vilja. Hann er auðvitað andlega vanheill, og því var ljótt af fólki að hreyta í hann fúkyrðum, en ég lái þeim sem það gerðu það engan veginn, miðað við hvernig hann þykist alltaf vita allt betur en allir aðrir, sem er svo grátlega langt frá því að vera satt að það er sárara en orðum taki. Svo má ekki gleyma því að ekki einungis var hann yfirlætisfullur og var að reyna að ráðleggja fólki um hluti sem hann hafði ekki hundsvit á, heldur svívirti hann vissa aðila og kallaði þá öllum illum nöfnum, án þess að þeir hefðu annað til þess unnið en að beita á hann húmor sem honum var og er fyrirmunað að skilja.
Úlfamaðurinn passar ekki í samfélagið okkar hérna, né heldur í neitt annað samfélag sem ég þekki. Hann er ofvaxinn krakki sem skemmir allt sem hann kemur nálægt með klaufaskap og vitleysu, af því að hann skilur ekki hvernig samfélög fullorðna virka, né heldur einfalda hluti eins og kaldhæðni og húmor, sem er það sem Baggalútur gengur út á fyrst og fremst. Hugmyndir hans eru síðan langoftast argasta þvæla sem eiga ekkert skylt við veruleikann, og því eru þær engan veginn umræðuhæfar. Þetta segi ég ekki af mannvonsku né gremju; þetta er einfaldlega bara staðreynd.
Þetta langlokuinnlegg mitt er mín rafmælisgjöf til Úlfamannsins. Megi hann vel lifa, en aldrei snúa aftur hingað. Og hana-fokking-nú.
Ditto!
Hann er veikur greyið. Brottvísun var engu að síður réttlætanleg. Það dugar ekki að láta heilt samfélag vera meðvirkt í herkví veiks manns.
♪Þú ert skvísa ♪ Mona Lísa ♪ mega skvísa ♪
Til rafmingju með hafmælið Ljómar upp
Mögnuð er Mona Lisa
Til hamingju með daginn.
Þar sem enginn á rafmæli í dag, þá vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem eiga rafmæli á lokunartíma (eins og t.d. Hvæsi) innilega til hamingju með Rafmælið. xT
Þar sem enginn á rafmæli í dag, þá vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem eiga rafmæli á lokunartíma (eins og t.d. Hvæsi) innilega til hamingju með Rafmælið. xT
Góð hugmynd! Til hamingju allir sem fæddir eru um sumarlokun og allir þeir sem fæddir eru hálfu ári á undan/eftir sumarlokun.
xT
Ég óska Gimlé innilega til hamingju með Rafmælið og vona að hann láti sjá sig. Býður upp á stuðlakaffi
Ég óska hér með öllum þeim til hamingju sem hefðu átt rafmæli í sumar. xT
Hátíðarkvejður til rafmælisbarnanna, þau lengi lifi.
xT