Api
óskast um borð í togarann Hertbert VE. Má ekki vera mjög sjóveikur.
Þarf að vita hve mikinn kvóta dollan hefur áður en ég tek við skipstjórastöðunni.
Ha, ertu að auglýsa eftir stöðunni eða ertu að sækja um hana?
Á forsíðu Baggalúts er auglýst eftir karlhóru og barnfóstru fyrir fjöldamorðingja.
Ólöglega tóbaksauglýsingu ásamt friðuðum hátíðarmat fyrir sumardaginn fyrsta má þar og finna, auk apastöðunnar á Hebba VE.
Lest þú ekki blað sannleikans á hverjum morgni til að stilla kúrsinn fyrir daginn? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég var að spá að svara auglýsingunni en mig vantar skipstjórnarréttindi svo það varða ekkert úr því. Ég ætti kannski að ráða mig þarna sem gjafara í teningaspilum?
Nei! Öll apaspil, ská, bridge, lúdó, póker og svartipétur eru bönnuð.
Teninga og önnur vitleysisköst eru líka stranglega harðbönnuð.
Sporðaköst og uppköst, togvíra og höfrungahlaup ásamt öðrum viðurkendum íþróttagreinum svosem kjöldrætti og boltaleikjum með hvalsaugu, verða þó leyfðar á frívöktum.
Minnir mig á það, mig bráðvantar ísmola. Ætli þeir sem auglýstir eru á forsíðu besta fréttamiðils landsins séu farnir?