Hexia de Trix, til hamingju með rafmæli yðar.
Hexia de Trix fær mínar bestu rafmæliskveðjur og vonandi verður rjúkandi kakó í pottunum næsta sólarhringinn. xT
Hexía fær hvítrússneskar rjómakokkteilkveðjur í tilefni dagsins. S K Á L ! xT
Í tilefni rafmælis Hexíu hef ég ákveðið að gera mitt besta til að stela happapeningnum frá Aðalöndinni svo Hexía fái verðuga rafmælisgjöf.
Nú ef ekki þá verða blóm og konfekt að duga.
xT
Hexía de Trix, til hamingju með rafmælið !
Þeytir alltof mikinn rjóma og skilur eftir hér með rauðum borða utanum skálina
Til hamingju með rafmælið Hexía! xT
Færir Hexíu stóran kassa af fagurbláum kakóbollum
Hexía, innilega til hamingju.Ljómar upp Má bjóða þér spá.
Til hamingju með rafmælið Hexía. Gefur Hexíu nýjustur gerð af flugkúst í rafmælisgjöf
Til lukku Hexía og til lukku Kargur. Sendi einnig kveðjur til Wonko vegna þess að hann er svo flippaður.
xTxTxT
Hexía fær að sjálfsögðu ástar- og saknaðarkveðjur frá Aðalönd group ehf. Kargur fær líka stuðkveðjur.
Roðnar og blánar og fer hjá sér
Elsku snúllubossarnir mínir, hjartans þakkir fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar! Ég hef ekki getað verið neitt með ykkur undanfarið, nema í anda. Ég var skikkuð til að taka þátt í leynilegu rannsóknaverkefni á umbótaþörf ýmissa staðla á hlóðum og öðrum eldstæðum. Eins og þið getið rétt ímyndað ykkur getur það skipt sköpum þegar verið er að malla seið hvort eldstæðið stenst allar kröfur.
Svo loksins þegar ég ramba inn er það fyrsta sem ég sé að ég á rafmæli! Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það gleður gamla önd að fá svona mikið af kveðjum.
Mallar hátíðar-rafmælis-endurkomu-kakó... eftir að hafa sannfærst um að eldstæðið standist nýjustu kröfurnar Gjörið svo vel elsku kakópottarnir mínir!
Mætir með stóra málið og barmafyllir það Kærar þakkir!
Til Hamingju Hexia
Gefur Hexiu dós af kakói frá Páskaeyjum
Innilega til hamingju Hexia!
Gefur Hexiu eftirlíkingu af happapeningnum
Hexia de Trix Riddara-rafmæliskveðjur
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum Hexiu hjer með formlega til hamingju með rafmælið Færir Hexiu 220 tonn af úrvals kóbaltblönduðu kakódufti
Hexia fær snældu kveðju frá Lopa.
Hexia fær mína rindælustu rafmæliskveðjur.xT