að éta pitsu frá hróa.
Ligg uppi í rúmi með lappann. Slakar á
Að sakna lappans míns ógurlega, sem er í viðgerð hjá einhverjum örvitum í þjónustuveri dauðans.
Er að skella Regínulega í góm og hrista höfuðið yfir lappaáráttu fólks
Er þetta lappablæti?
Glottir
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri Nei lappalæti, hehehehehe.
Ég sit með hnefann milli miðbaks og stólbaks og örvænti yfir orðkynngikrafti Megasar.
Ég er að spá í að skella mér í brunch á vegamótum.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Tjakka mig niður úr því að vinna og leita að almennilegri tebúð í heimsborg sem ég ferðast til innan skamms.
Maður verður að forgangsraða.
Ég er að gefa gullfiskunum.
Annars þarf ekkert að leita sérstaklega að einhverri tebúð í heimsborginni(sé það hin sama og áður var rætt um), það er í öllum stórmörkuðum o.s.frv.
Ég er að koma mér fyrir uppí sófa eftir að hafa étið brunch sem innihélt ;
1. 2 ristaðar brauðsneiðar
2. 2 tegundir osta
3. Pastrami skinka
4. Skyrboozt
5. Steiktar kartöflur
6. Tómatur
Ropar
7. Gúrka
8. Appelsína
9. Melóna
10. Banani
11. Appelsínusafi
12. Pönnuköku með sírópi
13. Hrærð egg
14. Beikon
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég er;
Í fyrsta lagi: að velta fyrir mér hví þá í fjandskotanum meistari Hvæsi er svo duglegur að draga brunch á langinn.
Og í öðru lagi: að grýta öndinni eins langt og vel og ég get.
Strýkur handarbaki yfir enni og gefur frá sér dugnaðarstunu
-
Góða nótt.
Halda áfram að horfa á heimildarmynd um Steve Martin.