Ég fann hvergi dálk þar sem maður á að spreyta sitt intökupróf hér.
Léttfeti hér læðist nú
leikur sér að orðum,
Les hér þetta ljóðabú
ljúfmeti á borðum.
Mætir kátur klár í hús
kveðskap sinn vill virkja,
Kannski væl mitt bölvað blús
bull vill stundum yrkja.
Tölvuvísur verða til
vont er þeim að henda.
Sumt er flókið sumt ég skil
sumt má mér á benda.
Léttfeti hér leikur sér
lætur í sér heyra,
Lætur vaða vísur hér
viljið þið fá meira?
Laglegt Léttfeti, þú ert hinsvegar að leita að Innflytjendahliðinu. Gangi þér vel að komast þar í gegn.
Það er innflytjendahlið annars staðar. Annars felur þú þig bara á Skáldskaparmálum þangað til þú ert sloppinn í gegn um það.
Ýmis próf. Sum stórhættuleg...
Þú getur líka þurft að láta peninga af hendi rakna.
Carrie var til dæmis einu sinni Skrilljónamæringur. En það er liðin tíð... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
En núna er ég vitavörður og það er óneitanlega meira smart en að eiga skrilljónir. Ljómar upp
Ég komst nú inn án þess að fara í gegnum innflytendahliðið. Ég fann nefnilega bakdyrnar.Glottir eins og fífl
Nú er bara að bíða eftir dóminum, Ef ég fell reyni ég bara aftur.
Gvendur hefur augljóslega tröllatrú á Léttfeta!
Jú, sérstaklega í skalanum frá 1 - 10. Glottir eins og fífl
Gefur einkunn
Þetta verð ég að læra. Helst að fá tvo ása og vera með mjög svo tilkomumikið comeback (afsakið) á Ásar vinna.
Er þetta ekki hæsta einkun?
Rjett í þessu uppgötvuðum vjer nýtt og alvarlegt vandamál, það hefur steingleymst að ákveða yfir hvaða skala svona einkunnargjöf skuli ná. Leggjum vjer því til að þegar í stað verði hafnar formlegar umræður um það.
Jafnframt vörum vjer Ljettfeta við að nýliðamóttakan hjer getur stundum minnt á e.k. 'busavígslu'. Einungis sumir nýliðar lenda þó á listanum yfir óvini baggalútíska heimsveldisins þó yfirleitt líti í byrjun út eins og þeir geri það allir Fer gegnum háa pappírsstafla.
Ég vil hins vegar bjóða Léttfeta hjartanlega velkominn, hann getur ort ágætlega og tel ég inngöngu hans miðast við þá kunnáttu.