Ertu brjálaður maður.
Hefur þú soðið borðtuskuna þína í potti á eldavélinni?
Já þeir flækjast alltaf á milli brjóstanna á mér.Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Hefur þú búið til borðtuskusoð
Ég ætla bara að heilsa ykkur Dulu og Furðuverunni og hinum sem hafið leyft mér að vera með.
Ég er í fríi í dag og mun síðan ekki sjást í nokkra daga, gaman að leika við ykkur.
:-)
Nei ég hef ekki ælt í sjóinn milli Íslands og Færeyja.
Hefur þú gert þér grein fyrir að notkun broskalla og slíkra fyrirbæra er illa séð á Gestapó.
Nei, mér finnst notkun broskalla það algeng á internetinu að ég kippi mér ekkert sérstaklega upp við það.
Hefur þú fengið æði fyrir tölvuleik og spilað hann frá því að sól er sest og þangað til hún kemur aftur upp? (Hér skal gera ráð fyrir íslensku sumri og hagræða tímaeyðslu í samræmi við það)
Já.
Hefur þú komið fram í útvarpi?
Nei.
Hefur þú komið fram í sjónvarpi?
Já já já.
Hefur þú verið ljósmyndaður/ljósmynduð án þess að þú vitir af og séð það síðan annars staðar?
Nei
Hefur þú brúkað keðjusög?
Nei, einvörðungu upprunalegu týpuna.
Hefur þú höndlað hamingjuna?
Já, en svo valt hún undir sófa. Ég þarf að fara að finna hana aftur fljótlega.
Hefur þú sungið af hamingju?
Já.
Hefur þú sungið við garðyrkjustörf?
Ójá. Sérstaklega smellinn um hana Svanfríði hér um árið. Sönglar Krókinn af hjartans lyst
Hefur þú saumað tölu á jakka fyrir ókunnan Japana?
Nei.
Hefur þú sett hárið í hnút þegar þú ert að fara að ryksuga?