Jæja, það hlaut að koma að því. Nú fáum við loksins 7 ný undur veraldar. Á þessari heimasíðu er verið að kjósa um 7 ný undur veraldar.
Machu Picchu er mitt uppáhalds.
Þarna vantar bæði Baggalút og Baggalútíu Brestur í óstöðvandi grát.
Þarna er hvergi minnst á Vímus!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vantar líka Smáralindina. Meira bullið.
Þetta eru fávitar, hverjum finnst frelsisstyttan eða parísarturninn merkileg fyrirbæri. Það ætti að kjósa um eitthvað sem er virkilega undur veraldar einsog heilabúið í Gogga Runna og þannig fyrirbærum.

Hver er Goggi Runni?
Það er líklega Georg nokkur forseti í bandaríkjahrepp.
George Bush
Ég er ekki sammála því að kalla vanvitann Runna eitt af undrum veraldar.
Hann er hinsvegar eitt versta viðundur veraldar frá upphafi.
Já er það ekki magnað hvað vanviskan í honum er mikilfengleg í fáfengi sinni, eini maðurinn í heiminum sem er með greindarvísitölu á við skónúmerið sitt og hefur jafn mikil völd.Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta fífl er kosið af Bandaríkjamönnum (Hlaut reyndar aldrei löglega kosningu) en hugsandi jarðarbúar hafa ekkert með það að gera, hvursu hættulegur sem þessi valdamesti maður heims er.
Vantar líka Smáralindina. Meira bullið.
Ekki tækt að stærsta reðurtákn í heimi komist ekki á listann.
Ég er ekki sammála því að kalla vanvitann Runna eitt af undrum veraldar.
Hann er hinsvegar eitt versta viðundur veraldar frá upphafi.
Hvernig væri þá að stofna þráð um 7 mestu viðundur veralsar? Rýkur til og stofnar þráðinn
Fuss og svei.
Breyta undrum veraldar? Hvað er það!
Þó svo að pýramídarnir séu eina undrið sem enn stendur, er það engin ástæða til að breyta um þau!
Reyndar ágætis hugmynd að hafa gaurana á páskaeyju, þar sem enginn veit hversvegna eða hvernig þeir voru búnir til eða færðir til.... en það er einmitt málið!
Sjö undur veraldar eru UNDUR því enginn veit hvernig í ósköpunum forverum okkar tókst að byggja þau með þá verandi tækniskorti.
Það vita allir hvernig effelturninn var byggður. Það er ekkert undur!
Eða Sidney draslið... æi kommon.
Fólk sökkar.
Eða Sidney draslið... æi kommon.
Fólk sökkar.
Sidney draslið? Persónulega finnst mér það vera nokkuð skemmtileg bygging og tekst það ætlunarverk sitt vel að vera kennileyti. Og það sem meira er, hún hentar vel fyrir ætlunarverk sitt, góður hljómburður þar inni.

Ég neitaði því aldrei að þetta væri skemmtileg bygging, einkennandi fyrir Sidney og Ástralíu gervalla auk þess (ólíkt flestum byggingum sem eiga að lúkka) að hafa notagildi.
En þetta er andskotinn hafi það ekkert undur veraldar!
Það er barasta ekkert undarlegt eða dularfullt við þessa byggingu!