Forsetinn á rafmæli í dag. Húrra Húrra Húrra Í dag skulum við halda þjóðhátíð Forsetanum og þegnum Baggalútíu til heiðurs.xT Kemur með einn gám af Ákavíti og einn gám af Blút Gjörið svo vel.xT
Þambar veigarnar
Skreytir með fánum Baggalútíu og hengir borða yfir þráðinn.
۞ ♪ TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ♪ ۞
Þjóðhátíðardagur Baggalútíu er reyndar eigi einn dagur heldur heill mánuður, þ.e. október ef vjer munum rjett (sökum þess hve vel var haldið upp á hátíðina muna fæstir hvenær hún var).
Eigi er það þó slæm hugmynd að undirbúa þjóðhátíðina í febrúar með því að prófa þá allt það sem ætlunin er að hafa á þjóðhátíðinni í október til að kanna hvort það virki. Líst oss því vel á þjóðhátíðarundirbúningshátíðarhátíð og leggjum til að hún standi út febrúar.
Kemur með nokkra tankbíla af fagurbláum drykk í boði forsetaembættisins, 3 tonn af risaflugeldum, tvö kjarnorkuflugskeyti, 250 skriðdreka (svo hægt sje að halda hersýningu), 40.000 fermetra risaútitjald með sviði, dansgólfi og risabar, 'lasershowbúnað' og 20.000 eftirlitsmyndavjelar
Skál !
Útbýr annað sýniseintak af hátíðaborða
۞ ۩ TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ۩ ۞
Til hamingju með rafmælið Forseti !
Setur upp stærsta og flottasta hlaðborð sem sést hefur í Baggalútíu
Við ættum greinilega að æfa okkur allt árið. Hámar í sig veislumatinn
Ég er að springa eftir allt saltketið í dag, en það má alltaf bæta á sig ákavíti og blút.
Fær sér sitt glasið af hvorri tegund xT
Hahahah... er það bara mér sem finnst það svolítið fyndið að Forseti vor hafi einmitt átt afmæli á sprengidag?
Hahahah... er það bara mér sem finnst það svolítið fyndið að Forseti vor hafi einmitt átt afmæli á sprengidag?
Mér finnst það bara mjög rökrétt. Starir þegjandi út í loftið