— GESTAPÓ —
Víti er í vanda statt!
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 7/10/03 17:24

Víti er í vanda statt
velgjörðarar hlæja
Kuldastigið hækkar hratt
og ylinn fer að lægja.

Það sem kuldinn af sér elur
önnur svitaferð.
Í helvítinu hitinn selur
hækkar óðum verð.

"Ekki skánar ástandið."
Illir púkar tauta.
Kölski fór og klæddi sig
og keypti nýja skauta.

Nú verðið þið að hjálpa kölska úr klípunni, ef þið viljið ekki að það botnfrjósi í helvíti.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
GESTUR
 • LOKAР• 
Bragi X 7/10/03 22:48

Eitt gott hérna!

Hanninn fagri á hólnum stendur
Hann er með brúnar og hvítar rendur
Stélið gult og goggurinn líka
...en hænan er allt öðruvísi ;)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 8/10/03 12:16

Í kosningum fékk hann ótrúlegt fylgi
-fjandinn það reyndar aldrei skildi-
Þó frjósi víti og púkar væla
vill Össur ekki satt orð mæla.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 8/10/03 22:26

ef að hækka hiti má
hér skal ráðin kenna:
nokkrar skaltu nornir fá
næst þær allar brenna

feminlista láttu sjá
listagóða erótík
hitnar þeim í hamsi þá
(hitasvækjan engu lík)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Hvað skal kynda eldhúsið
um frostamarksins leyti
nú þurft´ að setja höfuðið
í nánast frosið bleyti

Djöfullin ekki ráðalaus dó
hljóp í bæinn móður
Alþingismenn eru þó
brenniviður góður

Sir Bjargmundur Svarfdal frá Keppum KBE • Nefndarmálaráðherra og Utanríkismálaráðherra Baggalútíu • Stórriddari Baggalútíu
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: