Eins og allir vita er staða keisaralegs hirðfífls mesta og virðulegasta embætti í Baggalútíu. Það kemur mér því skemmtilega á óvart að enginn skuli verma það sæti og vil ég bæta úr því. Ég tel mig vera hið eina sanna keisaralega hirðfífl sökum þess hve skemmtilega húmorsnauður ég er.
Verði ég fyrir valinu á þessu embætti heiti ég því að skemmta keisara vor, Miklum Hákoni, með hræðilegum og hreint út sagt skelfilegalélegum húmor svo hann hlægi sig máttvana.
Og ég er tilbúinn til að selja sálu mína.
Hvað kostar sálin úr þér?
Sem hirðstjóri tel ég sálu hans vera mína ef hann á annað borð vill embætti hirðfífls. Hvað segirðu um það skröggur. Teygar Admiral og bíður spenntur
Hvað er annars gangverð á sálum? Ég væri alveg til í að selja mína fyrir rétt verð. Ég gæti t.d. tekið við greiðslu í kóbalti, últrakóbalti, eða bara kornbrennivíni.
Nú þarf bara hæstvirtur keisari vor að láta í ljós hver hans vilji er í máli þessu.
Ég lét Landbúnaðarráðuneytið fyrir sál Vambans. En síðan eru gæði sála náttúrulega mismunandi. Svo að ég taki nú dæmi myndi ég láta svona lokk úr hári mínu fyrir sálina úr Blástakk en hinsvegar Landbúnaðarráðuneytið fyrir sálina úr Vamban, sem er einstaklega góð sál og hefur reynst mér vel.
Fyrir ykkur sem ekki kunna að geyma sálir, þá er gott að setja þær bara í tómt fiskabúr og fóðra hana með kóbaltmolum uppmögnuðum af hlýjum hugsunum.
Mín reynsla af sálum er að venjuleg rimlabúr halda þeim illa og því getur verið varasamt að greiða of hátt verð fyrir þær enda tekur seljandi enga ábyrgð á vörunni þegar hún er komin úr hans umsjá.
Er ekki hægt að fjöldaframleiða hentugan kóbaltkút til sálnageymslu? Jafnvel sem myndi passa í vasa? Ég ætti kannski að vinda mér í rannsóknir á málinu...
A.m.k. taka sálirnar ekki mikið pláss. Maður ætti kannski að athuga hvernig græjur Gost busters voru með.
Ég notast við kóbalthólk sem með sterku segulsviði þeytir sálunum endalaust í hringi og myndar þannig orku sem hægt er að notast við.
Bráðsnjallt. Líklega voru Ghost busters með eitthvað svipað, þeir voru með eitthvað sem snérist minnir mig.
Mistökin sem þeir gerðu var að setja síðan allar sálirnar saman í einn stóran geymi sem þarfnaðist mikillar orku. Síðan gat bara hvaða Pétur og Páll sem er komið og slökkt á rafmagninu hjá þeim.
Já flestir viti bornir menn hefðu líka dreyft áhættunni sem stóð af hvers konar bilun. Tveir geymar eru nú lágmark þó það myndi bara helminga áhættuna.
Já, eða aðskilin hólf fyrir hverja sál og varaaflgjafar?
Eins og málshátturinn segir, never put all your legs in one bastard.
Annars voru þessir draugar ekkert að gera af sér nema að ranghvolfa augum, slefa og fljúga í gegn um veggi. Það sjá því allir að draugarnir voru bara geðsjúkar sálir en svo voru hetjurnar að veiða aumingja sjúklingana og loka þá inni í myrkum geymi. Það segir ýmislegt um heilbrigðiskerfið þarna í ameríkunni.
Þetta var kannski gott dæmi um ímyndaða þörf, skapaða af gráðugum kapítalistum, sem notfærðu sér krankleika réttindalausra sem gróðaveg?