Eru þeir embættismenn? Ég myndi frekar flokka þá sem 'launþega' eða 'verkalýð'. Æðstu stjórnendur ætti kannski heima á sérstökum lista yfir athafnamenn Baggalútíu.
Það er félag sem er ekki á nokkurn hátt tengt eða styrkt af ríkisstjórninni. skimar eftir hlerunartækjum
skimar eftir hlerunartækjum
Míkrófónninn er þarna á skrifborðinu hjá þér.
Hvernig litist þér á embættið: "Reykjavíkurskáldið"
krotar yfir nafn Tómasar
Ég tilnefni sjálfan mig sem Jedi-meistara Baggalútíu, og jafnvel keisaralegt hirðfífl í leiðinni, eða er ég kannski einum of frakkur þar?
Þú tilnefnir þig bara ekki sísona. En þér er veitt starfsheitið hirðfífl keisarans.
Já, hvernig var það. Fjarri mér að vilja sýna frekju, en var ekki einhver speni... eh, titill í burðarliðnum sem hentar mínum sérstöku hæfileikum?
Hvað í húrrandi helvískum er starf handa Muss S. Ein!?
Reddið manninum starfi! Kannski hjá Smekksráðherra sem matarráðgjafi
Vísindaráðherra ?
Ég styð það heilshugar. Hann mun þá vinna náið með Landbúnaðarráðherra, Heilbrigðisráðherra og Fólskumálaráðherra.
Vísundaráðherra? Tjah, hví ekki að gera tilraunir með kokkteilvísunda?
Það eru allt fyrsta flokks samstarfsmenn, vel líst mér á þetta! Gefur frá sér vellíðunarstunu
'Hugsuður, hugmyndasmiður og heilari' (það síðastnefnda bara uppá stuðlana). Muss S. Sein á jafnvel skilið orðu fyrir hina þörfu og gagnlegu uppfinningu, kokteilsvínin klórar kokteil-gríslingunum sínum á maganum.
rekur einn þeirra í gegn og býr til hinn vanalega "flaming akvavit piggy"
Já, það er jafnvel betra. Minnir skemmtilega á stöðu Raspútíns við hirðina í Rússlandi.
Hugleiðir að ráða sér lífvörð og smakkara
Vér höfum bætt Muss S. Sein inn á ráðherralistann sem vísindaráðherra og er hann jafnframt með sjálfan sig sem undirmann, sbr. tillögur ofar í þræði þessum