Það er bannað, þú verður að spyrja sjálfur, annars drepur Tinni þig.
Æ, setur hann ekki bara upp svona "harðgerðismaður-skráp" en er svo hinn ljúfasti inn við beinið?
Íslendingabók Ara hefur varðveist svo ekki var það Ari því engin rita okkar manns eru lengur til - og er hann þó síst ófrægari
Lemur hausnum við borðið
Bölvaður hakuchi get ég verið.
Hér hefur ekkert verið svarað svo ég ætla að gera það sjálfur og krefst þess jafnframt að einhver púsli saman nýrri spurningu. Svarið er: Úr íslenskum og norrænum dróttkvæðum.
Frelsishetja vinsamlegast strokaðu þetta innlegg út hjá þér, því það samræmist ekki leikreglum.
Jæja, best að púkka aðeins upp á þennan leik...
Í hvaða stríði var brögðum beitt með tréhesti?
Þá máttu vera tilbúinn með næstu spyrðlingu er það ekki? Hlégestur?
Þó ekki um Fjalldrapann, sem telst vera planta. "Þar sem Fjalldrapinn grær..." segir í gömlu kvæði
Skrifaði hann um halastjörnu ? Starir þegjandi út í loftið
Ég meina: Tinnabókin heitir "Dularfulla stjarnan" en þú ert að spyrja um eitthvert rit sem kemur við sögu í henni er það ekki?
Vér höfum eigi flett þessu upp en hér er röð ágiskana um hvað bókin gæti verið um:
Árekstra loftsteina og/eða halastjarna við jörðina
Geimverur/líf á öðrum hnöttum
Líffræði (eða undirflokkana dýrafræði eða grasafræði)
Haffræði
Stjörnufræði
Jarðfræði
Heimskautasvæði jarðarinnar
Hárrétt Tinni, en þú þarft að slá þessu upp til að ljúka réttu svari. Nú eða einhver sem á undan þér kynni að vera. En varstu ekki annars þarna um borð sjálfur? Í þessari fínu úlpu!
Æi, kláraðu svarið, Hlégestur, ég er ekki með bókina við hendina.
Hann mun að öllum líkindum bera hið ágæta nafn Grímur, er það ekki svo?
Þá spyrjum vér: „Hver var eftirmaður Múhameðs sem leiðtogi Araba?“
Þetta er svínþungt hjá þér, en getur hugsast að þetta hafi verið náfrændi Múhameðs og jaframt tengdasonur hans: Ali?
Frændi hans hann er en Ali er ekki nafnið.
Og allt er erfitt ef maður veit ekki svarið, Tinni minn![/code]
Kannski er þetta „svínþungt“ eins og Tinni orðar það, enginn virðist geta þetta. Svarið er: Abu Bakr.
Þá spyr ég aðeins léttari spurningu: Hver var fyrsti keisari Rómaveldis?