Eina regla þessa leiks er að n má vera hvaða jákvæð heiltala sem er, nema 1. Að öðru leyti ætti hann að skýra sig sjálfur.
Fyrst vil ég bjóða ykkur að bera saman ungan Afturhaldskommatitt og Kasakstanan geðþekka, Borat Sagdiyev:
Ég játa. Borat er launsonur minn. Þessi fyllerísferð til Kasakstan var nokkuð sem hefði aldrei átt að gerast.
Bíddu, ha? Ég skil ekki leikinn. Klórar sér í hausnum
Góð afhjúpun hins vegar hjá þér með Afturhaldskommatittinn og Borat. Mig hefur alltaf grunað þetta. Skemmtilegt samt hvernig afskiptaleysi kommans hefur haft aukin áhrif á Kanadýrkun Borats.
Kannski þarf að útskýra betur.
Leikurinn gengur út á að finna tví- þrí- eða jafnvel fleiri-fara og sýna þá hér.
Hm? Eru einhver vandræði með hann systurson minn?