♪♪ Ólafur reið með björgum fram............ ♪♪
Átti ekki að vera stórt B í björgum ? Starir þegjandi út í loftið
Átti ekki að vera stórt B í björgum ? Starir þegjandi út í loftið
Ég hef litið þannig á að þarna væri um að ræða einhverja ótiltekna kletta en vera má að það sé rangt.
Eigi vorum vjer með kletta í huga Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
Þekkir þú Björgu (eða Bjargir).
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hér er þetta alltént með litlu b http://www.ismennt.is/vefir/ari/alfar/aljod/liljuros.htm
Þar segir líka:
Velkominn, Ólafur liljurós!
Gakk í björg og bú með oss
Fær sér kaffi og súkkulaði og býst til að hlusta á Dánartilkynningar og jarðarfarir
Nöldrar krónískt yfir öllu, enda staðráðinn í að verða hundleiðinleg gamalmenni
Heyrðu, mig minnir að ég hafi verið í þessu félagi einhvern tímann sem gamall stríðsjálkur, en maður er nú farinn að gleyma...
Stríðsjálkur? Í hvaða stríði?
Fáðu þér nú kaffi og segðu okkur frá. Helllir uppá og réttir skara bolla.
Það var á því herrans ári 2003 að hersveitir Bandaríkjamanna réðust inní Írak. Horfir dreyminn út í loftið Ég ákvað í kjölfarið að grípa tækifærið og gerðist því málaliði fyrir Írakana sem borguðu mér vel fyrir í olíupeningum, en ég hef eins og margir vita gott orðspor á bakvið mig sem skæruliði. Kemst í ham Þarna barðist ég við Kananna og guð minn góður hvað ég sprengdi marga skriðdreka, þannig fékk ég nafnið Drekabaninn, en það kölluðu óvinirnir mig uppnumdir af hræðslu vegna sprengjukunnáttu minnar. Tekur handsprengju úr vasanum og réttir viðstöddum Ég var á góðri leið með að verða goðsögn hjá írösku þjóðinni fyrir sigra mína (sem þó gögnuðust ekkert vegna lélegra samverkamanna) en það varð því miður ekkert úr því.
Írakanir hættu að borga.
Hallar sér aftur í ruggustólnum og reykir rettuna í friði
Skriðdreka? Slær sér á lær. Flugdrekarnir eru þá í fullu fjöri ennþá vænti ég.
Það var ekkert búið að taka pinnann úr þessari handsprengju?
Starir þegjandi út í loftið
Heldur sig í hæfilegri fjarlægð
Það fer að verða varasamt að vera hér á Emblunni. Fær sér meira kaffi.
Mikið ævintýrafólk hérna.
Ljómar upp
Fórstu á krossgátukvöld á miðvikudaginn, Regína?
Mér líst ekkert á þetta, starfsmaður Hlerunarstofnunar í hættu.
Tekur handsprengjuna og fer með hana af þessum þráði og gerir við hana það sem maður gerir við handsprengjur til að gera þær óvirkar
Fórstu á krossgátukvöld á miðvikudaginn, Regína?
Nei, en þú?
Mikið er nú gott að hafa hana Carrie hér. Fyllist öryggi.
Öryggið uppmálað
Já ég fór. Það var voða gaman, óvenju snúnar gátur núna, sérstaklega sú fyrsta.
Ljómar upp