Hvar er Tigrisdýrið ?
Hefur henni verið rænt ? Síðast inni 20/11 ?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég hleraði einhvers staðar að hún hefði verið hneppt í varðhald og sé haldið við prófalestur.
Ég var búinn að mæla með Gimlé í biskupsembættið. Þeir verða því að koma aftur.
Svo vil ég fá Offara, hann hefur ekki sést í 5 klukkustundir.
Eru Gimlé farnir líka? Offari sagði síðast að hann væri ekki farinn! Það er greinilega engu treystandi í dag, svona er nú litaspáin rétt..... eða er þetta allt eitt allsherjar gabb?
Augljóslega samsæri. Viðamikið samsæri óvina ríkisins Hrökklast afturábak og hrasar ofan í óvinahelt neðanjarðarbyrgi
Hleraðir? Hljómar eins og efni í hlerara við Hlerunarstofnun. Ljómar upp
Mér fannst einmitt Laumupúkafræði og hleranir hrikalega spennandi námsgreinar þegar foringinn upplýsti mig um hvað Háskóli Baggalútíu byði uppá.
Hugsar um, hvort hún eigi að sækja um stöðu við hlerunarstofnun á öðrum þræði, öðrum þræði
Hver er þessi Jóakim sem allir eru að tala um? Af hverju man ég ekkert eftir honum?
Ég sakna Gimlé.
Ég líka.
Ófétið hann Smábaggi með sína ömurlegu lífssýn mætti alveg láta sjá sig aftur.
Hver er þessi Jóakim sem allir eru að tala um? Af hverju man ég ekkert eftir honum?
Ég sakna Gimlé.
Æi, það var gömul önd sem hafði allt á hornum sér (hafa endur horn?). Svo Hrökklaðist hann aftur á bak og hrasaði við við ljót ummæli Gimljár, en sá svo að sér og kom aftur, ekki sízt til að stríða þér. Ég sé hann þarna handan við hornið, með pípuhatt, lonníettur og skóhlífar. Bendir
Væri ekki vit í að fá Skabba Skrumara?
Jú.
Það væri líka fínt að fá Semmning Semmningsen og Sjöleytið.
Og Muss S. Sein, Dr. Zoidberg, Skammkel og marga fleiri. Sem betur fer hafa þó bæst við nýliðar (eða núna fyrrverandi nýliðar).
Eða bara einhvern friðargæsluliða á Skáldskaparmálin (ekki svo sem að bráð nauðsyn sé á inngripum - heldur bara til að varna munaðarleysingjatilfinningu).
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hvar er Skabbi eiginlega? Ég hafði gaman og þó nokkurt gagn af athugasemdum hans hér og þar.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hvar er eiginlega Skabbi skrumari? Hann hefur ekki sést hér síðan 12. desember.
Hann hlýtur að vera að leita að hlewagastiR, sem var hinn virki Friðargæsluliðinn á Skáldskaparmálum nú í seinni tíð.
Oss minnir að Skabbi hafi tilkynnt fyrr í haust að hann yrði fremur lítið við hjer næstu mánuði af ástæðum er vjer munum ei hverjar voru.
Það væri nú samt óskandi að hann fyndi sér lausa stund til að reka inn nefið. Opnar stóra neftóbaksdós og vonar að Skabbi renni á lyktina